Frelsið er yndislegt - #1 Geðheilbrigðismál fanga Umræðuþáttur um fangelsismál og réttarvörslukerfið á breiðum grunni. Viðmælendur koma víða að úr þjóðfélaginu og öllum steinum verður velt við. Umsjón: Ásdís Birna Bjarkadóttir og Guðmundur Ingi Þóroddsson. Viðmælendur fyrsta þáttarins eru þau Helgi Gunnlaugsson, prófessor í afbrotafræði, Halldór Kjartansson, fangavörður á Litla-Hrauni, og Arndís Vilhjálmsdóttir geðhjúkrunarfræðingur.dit. Þættirnir verða sýndir annan hvern þriðjudag klukkan 17:30 og endursýndir á laugardögum. Á hverjum tíma koma fram ýmsar kröfur og stefnumál í samfélaginu. Hver kannast ekki við græna uppbyggingu og svart hagkerfi, jöfnuð og fjármagnstekjur, ábyrga hagstjórn og bankahrun, jafnrétti og jákvæða mismunun, velferð og barnavernd, samgöngur og hunda, borgarlínu og hesta.
Ég stend í þeirri trú að mannréttindi og almenn réttindamál sé gott að skoða, annars vegar í tengslum við réttindabaráttu kvenna á Íslandi og hins vegar í samhengi við stöðu minnihlutahópa. Það er líklega óþarfi að leita leiðsagnar viðskiptalífsins. Ég held að öllum sem vilja kynnast íslenskri stjórnarskrá, eðli hennar og þróun sé hollt að kynnast þróunarsögu hinnar vitibornu konu. Jafnrétti er eitt grundvallarmannréttinda stjórnarskrárinnar og stendur þar við hlið annarra mannréttinda, næst á eftir þeim rétthæstu sem eru hagsmunir barna. Á þjóðveldisöld máttu giftar konur ráða heimilinu að því leyti sem snerti innanstokksmuni. Réttindi kvenna þróuðust hratt í samanburði við þróunarsögu hins vitiborna manns. Svo gustaði um kvenréttindabaráttuna á Íslandi að sögur herma að karlar sem hjá stóðu hafi fengið áður óþekkt kvef. Þegar kom fram á 13. öld var orðið bannað að gifta konur nema spyrja þær fyrst og þær öðluðust erfðarétt með ákveðnum skilyrðum. Þetta átti við um ekkjur og ógiftar konur en ekki þær sem voru í hjúskap. Það er nú ekki lengra liðið en tveir ógæfuríkir karlmannsaldrar frá því konur öðluðust sín fyrstu fjárhagslegu réttindi. Þau glötuðust þó enn við hjúskap. Sagan segir að þessi skipan varðandi forsjárhæfni karlmannsins hafi verið góð fyrir samfélagið enda eiginmenn oft drykkfelldir og auralitlir. Upp úr þarsíðustu aldamótum máttu konur mennta sig við sérhannaðan kvennaskóla og eignuðust séreignaréttindi. Tímamótalög heimiluðu konum að eiga og ráðstafa eignum sínum með tilteknum skilyrðum. Skömmu síðar fengu ekkjur og ógiftar konur skilyrtan kosningarétt og jafnvel kjörgengi. Hver hefði trúað því!? Rauðsokkuhreyfingin var stofnuð, kvennafrídagar litu dagsins ljós og konur gátu jafnvel farið í verkföll. Fyrstu jafnréttislögin tóku gildi þegar ég var ungur drengur, eða stúlka. En konur létu ekki staðar numið. Þær stofnuðu Femínistafélag Íslands, gengu druslugöngu, drógu kynferðismálin úr myrkrinu og klæddu þau í hæfilegan búning og hrintu fyrir borgarlínuna. Á síðustu árum hafa réttindi kynjanna verið hin sömu og aðeins hallar lítt eitt en hæfilega á karla. Hins vegar er stjórnarskráin alveg skýr um það að karlar skuli njóta jafnra réttinda á við konur. Það er þó ákveðin trygging? Núgildandi stjórnarskrá er gömul en ný hefur þó verið samin og samþykkt af þjóðinni. Hún hefur beðið utangarðs í áratug af einhverjum ástæðum. Ég tel að það sé alveg þjóðráð að kveðja gömlu stjórnarskránna með nýrri þó ekki sé nema til þess að sýna nútímaleg litbrigði fjöldans. Ég lít ekkert endilega þannig á að gamla skruddan sé úr sér gengin heldur sýnist mér að leiður kækur íslenskra stjórnvalda sé sá að fara alls ekkert eftir því sem í henni stendur. Ég lít þannig á nýja stjórnarskrá sem tilraun til að hætta að reykja; nokkurs konar áramótaheit. Og ei skal óttast nú frekar en áður þegar Hinrik konungur elti dreka á árum áður. Jafnréttið er líka ritað á góðri tungu í texta nýju stjórnarskrárinnar, jafn traust og skírlífsbelti drottningar. Alþingi gæti haldið ró sinni, líkt og Hinrik, og gefið fyrirheit um að leita sér ráðgjafar, jafnvel á götum úti og lært að forðast handahófskenndan og móðurlausan lagatexta. Framkvæmdavaldið gæti þá heitið því að láta af áhuga sínum á útúrsnúnum reglugerðartexta. Fyrirheit stofnana og sveitarfélaga gæti verið að hætta notkun óþekktra heimilda við ritun reglna og borgar- eða bæjarsamþykkta. Með þessum hætti gæti gildistaka nýrrar stjórnarskrár orðið happadrjúg og til þess að íslenska ríkið hætti að tapa hverju málinu á fætur öðru fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. En stjórnarskránna þarf hins vegar að handleika undir raunagóðri leiðsögn kvenna í stað brotgengrar karlmennsku. Ég vinn að miklu leyti fyrir minnihlutahópa sem eiga það sameiginlegt að þurfa að reiða sig á að stjórnvöld verndi þá með mannréttindaloforð að vopni. Og þessir sömu minnihlutahópar eiga að geta treyst því að stjórnmálaflokkar, sem taka sig alvarlega, beri virðingu fyrir þeim ófrávíkjanlegu lágmarksskyldum sem stjórnarskráin setur stjórnvöldum. Stjórnarskráin felur í sér bindandi og ófrávíkjanlegt samkomulag á milli stjórnvalda og almennings. Hún inniheldur lágmarksskilyrði sem tilvist stjórnskipunar Íslands byggir á. Þannig má segja að hún feli í sér gagnkvæm loforð, annars vegar loforð til almennings um virðingu fyrir texta stjórnarskrárinnar og hins vegar loforð um forræði stjórnvalda eftir því. Þetta er kaldrifjaður samningur með óefnislegum og ópólitískum loforðum. Stjórnarskráin er hlutlæg trygging borgara gegn huglægum og hagsmunatengdum aðgerðum stjórnvalda. Stjórnarskráin er kvenkyns í hlutarins eðli. Hún er lífsreynd móðir allra laga, amma allra reglugerða og langamma allra annarra stjórnvaldsfyrirmæla. Allt frá stofnun Afstöðu árið 2005 hefur eitt af höfuðmarkmiðum félagsins verið að hvetja fanga til þess að taka þátt í starfi AA-samtakanna. Upp úr aldamótum voru ekki margir sem nýttu sér úrræðið og horfðum við forsvarsmenn Afstöðu upp á hvern AA-fund á fætur öðrum þar sem enginn fangi mætti. Okkur þótti mikið til þess koma að sjálfboðaliðar gerðu sér ferð í fangelsin til þess eins að aðstoða fanga við að halda sér edrú og það þrátt fyrir að dræmar undirtektir. Þegar við spurðum sjálfboðaliðana hvers vegna þeir gæfust ekki hreinlega upp svöruðu þeir því til að ef þeim tækist að halda einum fanga edrú væri það kraftaverki líkast.
Við komum á samstarfi á milli Afstöðu og AA-samtakanna sem fólst í því að efla starfið í fangelsunum. Forsvarsmenn Afstöðu mættu sjálfir á fundina og fengu til liðs við sig eins konar áhrifavalda innan fangelsanna til þess að mæta einnig. Árangurinn lét ekki á sér standa og afskaplega ánægjulegt var að sjá mætinguna aukast jafnt og þétt þar til herbergið sem AA-samtökin höfðu til umráða var troðfullt. Á þessum tíma voru reglur í fangelsinu Litla-Hrauni á þann veg að blátt bann var lagt við því að fangar færu á milli bygginga til þess að sækja fundi og því þurftu sjálfboðaliðar AA-samtakanna að halda tvo fundi í röð. Þessu fékk Afstaða breytt til þess auka áhrifamátt fundanna enn frekar og gafst það afskaplega vel. Undanfarin ár hafa fundir AA-samtakanna verið í sömu mynd og starfsemin með ágætum. Árið 2018 leituðust samtökin svo eftir því að fjölga fundum sínum á Litla-Hrauni úr einum í tvo og tók Afstaða þá að sjálfsögðu að sér að hafa milligöngu um að reyna ná því í gegn. Sem gekk eftir. Starfsemi AA-samtakanna varð öflugri fyrir vikið og urðu til hópar innan AA sem mönnuðu fundi í öllum fangelsum landsins. Fljótlega komu til rafrænir fundir og um tíma var svonefndur edrú-gangur í fangelsinu á Hólmsheiði þangað sem Afstaða fékk sjálfboðaliða frá AA til þess að taka þátt í daglegu starfi á borð við morgunleikfimi og eldamennsku. Það starf var rétt að slíta barnsskónum þegar heimsfaraldur reið yfir og á enn eftir að endurreisa það að fullu. Nýverið leituðu samtökin enn á ný til Afstöðu en þau höfðu um nokkurn tíma falast eftir því að bæta enn við starfsemi sína í fangelsunum, bæta við þriðja fundinum í viku og fá að auki lengri tíma í hvert skipti í fangelsunum til þess að auka þjónustu við fangana, spjalla óformlega saman fyrir og eftir fundi og drekka saman kaffi. Fyrir tilstuðlan Afstöðu hafa AA-samtökin fengið leyfið. Afstaða er þess fullviss að AA-starf og áfengis- og vímuefnameðferðir innan fangelsanna séu einn af lyklum endurhæfingar og stuðli að betri líðan bæði í fangelsi og þegar út í frelsið er komið. Við munum því halda áfram að tryggja að AA-starf verði alltaf hluti af fangavist á Íslandi og gera það sem við getum til að auka vægi starfseminnar og fá í gegn að þátttaka í AA-starfi verði metið að verðleikum þegar teknar eru ákvarðanir um framgang fólks í afplánun, til dæmis þegar kemur að vistun í opnu úrræði, reynslulausn og fleira í þeim dúr. Á sama tíma hvetjum við ættingja og vini fólks sem afplánar í fangelsi að gefa starfi AA-samtakanna tækifæri. Það eitt getur orðið til þess að breyta lífi þeirra til betri framtíðar. Undanfarnar vikur hefur Afstaða sent tölvupósta á ýmsa opinbera aðila sem aðila í þriðja geiranum sem sinna velferða og mannúðarmálum eftirfarandi texta hér að neðan. Mjög vel hefur verið tekið í okkar erindi og virðist sem aðilar séu að átta sig á mikilvægi þess að útiloka ekki fólk frá atvinnu þrátt fyrir að vera á sakaskrá. Afstaða mun hér eftir senda á alla þá aðila sem við sjáum að óski aðeins eftir fólki með hreint sakavottorð og jafnvel bera slík mál fyrir dóm ef ekki verður brugðist við. Þess má geta að líklegt er að eitt slíkt mál fari fyrir dómstóla strax í byrjun árs 2022. Afstaða hefur einnig sent Félagsmálaráðuneytinu svipað erindi þegar kemur að bakvarðaskráningu í velferðarþjónustu en ekki þarf hreint sakavottorð í þau störf samkv. lögum en okkur hefur ekki borist svar ennþá. Afstaða hvetur þó Félagsmálaráðuneytið nú í ljósi neyðarástands í heilbrigðismálum að taka þetta ákvæði út við skráningu fólks í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar og meta fólk, störf og brotið. Tölvupóstur sýnishorn: Í auglýsingu um laust starf ........................ hjá............................ er það gert að skilyrði að umsækjandi hafi hreint sakavottorð. Við teljum það ekki samræmast 65. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. 14. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu og mannréttindasjónarmiðum almennt að útiloka með þessu hóp þjóðfélagsins sem getur verið að öðru leyti hæfur til starfans. Einnig má benda á lög um atvinnufrelsi manna. Þrátt fyrir að vissar tegundir refsidóma séu þess eðlis að ekki sé æskilegt að dómþoli starfi innan ....................................... eru þeir þó margskonar. Þannig er ólíklegt að sakavottorð hafi sjálfkrafa þær afleiðingar að dregið sé úr trú almennings og skjólstæðinga á starfseminni. Þá bendum við á lög um félagsþjónustu, þar sem þeir sem hafa verið dæmdir fyrir ákveðin brot eru útilokaðir frá ákveðnum störfum en meta skuli aðra og því gengur ekki að hafa ákveðna reglu heilt yfir fyrir alla. Því viljum við beina því til ykkar að það verði háð mati hverju sinni hvernig brot sé og þá hvort það sé þess eðlis að ekki sé hægt að ráða dómþola til starfa. Við gerum ekki aðrar athugasemdir við auglýsinguna núna en vonum að í framtíðinni verði þetta skilyrði orðað öðruvísi eins og t.d: hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur, en það er svipað og sum sveitarfélög auglýsa. Aðalmálið er þó að fara eftir því ákvæði að það sé metið í hvert skipti. Kærar þakkir og bestu kveðjur Öllum er ljóst að fangar eru afgangsstærð í íslensku samfélagi en sama skapi bitnar sú staðreynd harkalega á saklausum börnum þeirra sem afplána dóma sína. Nú ríkir neyðarástand í fangelsum landsins og því miður er útlit fyrir að svo verði áfram.
Til þess að halda mannlegri reisn sinni fá fangar greidda dagpeninga og fæðisfé sem nýtast á til kaupa á mat og brýnustu nauðsynjum. Upphæð dagpeninga hefur haldist sú sama í fimmtán ár og nemur 3.100 krónum á viku. Og engin ástæða hefur þótt til að hækka fæðisféð heldur enda vita allir að verðlag á Íslandi hefur haldist svipað frá 2006. Ekki satt? Nei. Sannleikurinn er sá að allar vörur hafa hækkað gríðarlega og nú er svo komið að fangar hafa hreinlega ekki efni á fæði, brýnustu hreinlætisvörum og hvað þá öðru smáræði sem þarf að kaupa, eins og jólagjafir handa börnum sí nú um. Öllum hækkunum hefur verið komið fyrir á herðum fanga og var byrðin þar næg fyrir. Fangar fá ekki desemberuppbót og langflestir þeirra sem afplána á Litla-Hrauni eru atvinnulausir og fá þar af leiðandi enga auka þóknun umfram dagpeninga og fæðisfé. Atvinnuleysið er ekki þeim að kenna. Það er enga vinnu að hafa. Þessir menn geta ekki glatt börn sín með smáræði um jólin. Það ætti að vera forgangsverkefni nýs dómsmálaráðherra að fara í þetta mál og bjarga föngum um jólabónus ef ekki nema til þess að gleðja nokkur ung hjörtu sem fá þá gjöf frá fjarverandi foreldri. Við hjá Afstöðu viljum styrkja fjölskyldubönd, við viljum betra fólk út úr fangelsunum. Við skorum á dómsmálaráðherra að beita sér í þágu betrunar. Ég er í hálfgerðu áfalli eftir að hafa horft á fréttaskýringarþáttinn Kveik á RÚV í kvöld þar sem fjallað var um framheilaskaða. Samhliða því að vera í áfalli er ég hryggur og reiður út í kerfið okkar og hvernig farið er með fólk í samfélagi sem hreykir sér af mannréttindum. Veikir einstaklingar eru vistaðir í fangelsum landsins, í einangrun og jafnvel færðir á svonefndan öryggisgang vegna hegðunar og þar mega þeir dúsa mánuðum saman án þess að eiga í samneyti við aðra. Þetta er fólkið sem þarf að afplána lengur í fangelsum vegna þess að Fangelsismálastofnun getur hreinlega ekki sleppt þeim út því það eru engin úrræði þegar út í samfélagið er komið. Það tekur ekkert við. Við hjá Afstöðu höfum gagnrýnt þetta í áraraðir en það er aldrei hlustað. Hvenær verður gerð heildstæð úttekt á starfsemi fangelsanna og starfsaðferðum þegar kemur að þessum hópi? Hvenær ætli stjórnvöld þurfi að semja um sanngirnisbætur þegar kemur að veikum föngum? Þroskaskertir og alvarlega geðfatlaðir einstaklingar hafa verið að meðaltali um fimm til sex á hverjum tíma í fangelsunum en svo koma þessar tölur fram. Fimmtíu prósent fanga eru með framheilaskaða! Þetta er grafalvarlegt mál og þarf að rannsaka strax, finna lausnir og það nú þegar. Engu að síður má telja Fangelsismálastofnun það til tekna að þar eru flottir sérfræðingar sem ég bind miklar vonir við. Þar hefur verið bætt við einstaklega hæfu starfsfólki en aðeins örfá ár eru síðan starfsmenn þarf vissu hreinlega ekki út á hvað endurhæfing fanga gekk út á. Hins vegar mun ekkert breytast á meðan áfram er unnið eftir sömu gömlu og úreltu lögunum og starfsaðferðunum. Tími endurhæfingar er runninn upp og ég treysti á nýjan dómsmálaráðherra, Jón Gunnarsson, til að taka í taumana og láta verkin tala. Komum veiku fólki á viðeigandi stofnanir og þær eru ekki fangelsi. Veikt fólk á ekki heima á bak við lás og slá. "Alþjóðlegar rannsóknir hafa sýnt að einn af hverjum tíu verður fyrir alvarlegum heilaskaða um ævina. Erlendar rannsóknir benda til þess að í það minnsta helmingur fanga sé með heilaskaða. Í rannsókn á sænskum heilbrigðisgögnum og fangelsisskýrslum kom í ljós að fólk með heilaskaða var þrisvar sinnum líklegra til að fremja ofbeldisglæpi en aðrir og helmingi líklegra til þess en ósködduð systkini. Í flestum tilvikum má rekja þetta til framheilaskaða." https://www.ruv.is/kveikur/heilaskadi/ Flest okkar göngum að því vísu að geta framvísað persónuskilríkjum þegar farið er fram á að við gerum grein fyrir því hver við erum. Þannig eigum við í viðskiptum við fyrirtæki, stofnanir og stjórnsýsluna. Með aukinni tæknivæðingu hafa skilríkin að miklu leyti færst yfir á rafrænt form og um leið sitja ákveðnir hópar eftir í fortíðinni. Þar á meðal eru fangar og fatlaðir einstaklingar.
Í Danmörku var sett í lög að allir þurfi að hafa aðgang að rafrænu pósthólfi og er allt sent þangað til fólks í stað til dæmis ábyrgðarpósts. Þetta hafði í för með sér að fangar í lokuðum öryggisfangelsum fengu aðgang að tölvu með interneti til að komast í pósthólfið sitt, banka og einnig til að geta gengið frá skattaskýrslum og sinna öllu því sem allir þurfa að gera. Mjög algengt er að við hjá Afstöðu aðstoðum fólk sem hefur verið í afplánun en hefur ekki skilað skattaskýrslum í mörg ár og jafnvel áratugi. Það getur verið flókið að vinna úr því ásamt að reyna að ná höndum yfir sektir, sakakostnað og meðlög. Þetta er í raun skuldafangelsi og svartnætti sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir. Þetta er hægt að laga á mjög einfaldan hátt og höfum við hjá Afstöðu oft komið með góð og gagnleg ráð til yfirvalda um hvernig sé hægt að leysa þetta ásamt ýmsu öðru. Við teljum nauðsynlegt að allir fangar hafi aðgang að tölvu og rafrænum skilríkjum þar sem þeir geta sinnt sínum nauðsynlegu og lögbundnu verkefnum sem allir þurfa að gera. Þá þarf að sinna bankamálum og öðru sem fólk gerir þar sem rafrænna skilríkja er krafist. Fangaverðir vita vissulega hversu flókið þetta getur verið og aðstoða eftir mesta megni en það er auðvitað bara takmarkað því á endanum þarf síma til að komast í rafræn skilríki. Og smart símar eru óleyfilegir bæði í lokuðum sem opnum fangelsum. Þar sem umræðan er hávær núna um rafræn skilríki og rætt um ákveðna hópa sem ekki geta nýtt sér þá þjónustu er nauðsynlegt að benda á þá og krefjast þess að sett verði í lög ákvæði sem tryggir aðgengi allra að jafn sjálfsögðum hlut og að framvísa skilríkjum sínum til þess að halda utan um lífið eins og það leggur sig. Það er nefnilega þannig að þeir sem sviptir eru frelsinu með dómi munu snúa aftur út í samfélagið og þá er mikilvægt að öll mál séu á hreinu þannig það þurfi ekki að vera fyrsta verkefni að leysa úr öllum flækjum sem hefðu aldrei þurft að verða. Það er getur verið mörgum ofviða því miður. Samhliða köllum við eftir markvissari fjármálakennslu í fangelsum landsins. Við sem samfélag þurfum að fá fólk í betra ástandi út úr fangelsunum og ekki endalaust að setja upp hindranir. Lausnir fyrir alla - ekki bara suma. Íslenskur karlmaður sem nú er vistaður í fangelsinu Litla-Hrauni hefði að öllu jöfnu átt að losna úr haldi fyrir rúmu hálfu ári, eða í byrjun maí. Afstaða, félag fanga, hefur unnið að máli mannsins í stjórnsýslunni en að sögn félagsins hafa fangelsisyfirvöld synjað manninum um reynslulausn vegna þess að lögregla sé með mál á hendur honum til rannsóknar.
Málið snýst um umdeilda og mjög vafasama lagareglu þ.e.a.s. 5. mgr. 80. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 15/2016 þar sem segir: „Fanga, sem á mál til meðferðar hjá lögreglu, ákæruvaldi eða dómstólum þar sem hann er grunaður um refsiverðan verknað, verður að jafnaði ekki veitt reynslulausn, enda sé málið rekið með eðlilegum hætti og dráttur á því ekki af völdum fangans.“ Samkvæmt upplýsingum frá Afstöðu er um að ræða séríslenska reglu sem er með öllu óútskýrð. Sömu reglu er að finna víða í fangelsislöggjöfinni og þá til skerðingar á réttindum fanga. Notuð til að skerða réttindi fanga. Reglan er eins og skemmd í banana. Erfitt er að finna haldbæran rökstuðning fyrir reglunni, eða að benda á tengsl hennar við tilgang og markmið reynslulausnar eða laganna almennt. Hún laumaði sér inn í lögin árið 2005 í gegnum reglugerð frá árinu 1993 sem hafði fengið verulega útreið í áliti Umboðsmanns Alþingis frá 2000. Þá fellur hún ekki að niðurstöðum Mannréttindadómstóls Evrópu. Við lagasetninguna árið 2005 skaust hún inn í lagatextann án skýringa eða umræðu. Upp frá því hefur hún verið notuð óspart til að synja föngum um réttindi sín, en enginn hefur þó gert nothæfa tilraun til að rökstyðja hana. Slíkar tilraunir hafa fætt af sér rökleysu, enda ómögulegt að ímynda sér aðstæður þar sem hún falli í hópinn. Eitt er augljóst og blasir við. Regluna má misnota. Tilvist hennar ein og sér býður hættunni heim. Lögreglan getur, hvað sem hver segir, einfaldlega skráð mál í kerfið með þeim afleiðingum að „tiltekinn“ einstaklingur fái ekki reynslulausn. Og reglan veitir jafnvel almennum borgurum tækifæri til að halda mönnum í fangelsi, með því að leggja fram skipulagða kæru á hendur fanga. Hér er ekki verið að segja að lögregla misfari með það vald sem lagareglan veitir henni, eða að almennur borgari taki upp á slíku. En leiðin er hins vegar fær og það eitt ætti að duga til að afskrifa hana. Allt hugsandi fólk ætti því að sjá að umrædd regla er röng. Hún hefur engan sjáanlegan tilgang og er miklu líklegri til að valda skaða en gagni. Það eru einmitt svona reglur sem valda því að almenningur missi trú á réttarkerfið. Gögn málsins, sem send hafa verið til dómsmálaráðuneytisins, gefa vísbendingu um að lögregla hafi í raun farið frjálslega í kringum lagaboð við rannsókn máls þessa manns. Ráðuneytið hefur undir höndum gögn frá barnsmóður mannsins sem kveðst hafa verið beitt þvingunum af lögreglufulltrúa við skýrslutöku. Barnsmóðirin ber við að lögreglufulltrúi hafi hótað henni ef framburður hennar væri ekki viðunandi og staðið við hótunina í beinu framhaldi. Í upphafi í máli fangans hafi lögregla reynt að hafa áhrif á það hver yrði verjandi mannsins. Þannig hafi lögregla neitað að verða við beiðni mannsins um verjanda, heldur sjálf ákveðið hver skyldi verja hann. Það er reyndar nokkuð sem stöðugt kemur á borð Afstöðu, en lögreglu er frekar tamt að velja sakborningum verjendur. Það er tekið fram að ekki er verið að gagnrýna viðkomandi lögmenn, heldur bent á að val rannsakanda á verjanda andstæðings síns er fallið til efasemda. Í ljósi þessa máls og annarra hefur Afstaða bent á að íslensk fangelsislöggjöf byggi á öðrum forsendum en löggjöf þjóðanna í kringum okkur. Hvað eftir annað eru synjanir um reynslulausn rökstuddar með óskiljanlegum hætti og jafnvel rökleysum. Einn algengasti rökstuðningur yfirvalda, og grundvallarrök fyrir synjunum, er í hróplegri andstöðu við úrtölur sem eru birtar á vef Fangelsismálastofnunar. Afstaða fer ekki ofan af því að víða í íslenskri fangelsislöggjöf eru ómálefnalegar lagareglur sem standast hvorki stjórnarskrá né markmið laganna sjálfra. Þetta er einnig sannleikur um nálgun fangelsisyfirvalda og lögskýringar þar á bæ. Telur félagið að skýringin sé sú að heildarmyndin snúi öfugt. Í stað þess að fjalla um skyldu stjórnvalda til að veita réttindi, er talað um heimild. Íslenskur fangi þarf að rökstyðja það hvers vegna yfirvöld eigi að veita honum heimild til reynslulausnar. Sænskum stjórnvöldum er skylt að veita fanga reynslulausn og þurfa að rökstyðja það sérstaklega ef hann á ekki að hljóta hana. Reyndar telur Afstaða að mjög víða í löggjöf landsins séu ómálefnalegar lagareglur um réttindi manna, sem fæðast í þeirri hugmynd að lög séu skrifuð fyrir stjórnvöld til að útdeila réttindum, en ekki fyrir borgarana til verndar réttindum þeirra. |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
January 2024
|