Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka verður 20.ágúst 2016 og hægt er að hlaupa fyrir Afstöðu, en markmið félagsins er að stuðla að betrun í afplánun og upplýsa fanga, aðstandendur, almenning og stjórnvöld um framgang í forvarnarstarfi og nýjungum í betrunarmálum. Hver sem er getur skráð sig í hlaupið og safnað áheitum fyrir Afstöðu - og hver sem er getur líka heitið á þá hlaupara sem hlaupa fyrir félagið. Það er mikilvægt að Afstaða geti áfram frætt stjórnvöld og almenning um mikilvægi betrunar í fangelsiskerfinu því það er samfélagslega hagkvæmt! @Afstada #hlaupastyrkur
Afstaða, félag fanga og annarra áhugamanna um bætt fangelsismál og betrun hefur um áratugaskeið staðið fyrir, og stuðlað að, uppbyggilegri og upplýsandi umræðu um stöðu frelsissviptra á Íslandi. Afstaða leggur áherslu á betrunarhugtakið og eru markmið félagsins fyrst og fremst þau að vinna að tækifæri fyrir fanga til ábyrgðar, endurreisnar og að búa þeim skilyrði til farsællar endurkomu út í samfélag manna að nýju. Afstaða leggur áherslu á að tekin verði upp betrunarvist á Íslandi þar sem mikilvægi menntunar (sérstaklega verknáms og starfsþjálfunar), efling fjölskyldu- og vinatengsla sem og eftirfylgni eftir afplánun leika þar lykilatriði.
Aðstandendur fanga hafa verið falinn samfélagshópur sem ekki hefur hlotið nægjanlegan stuðning og athygli. Mikilvægt er að betur verði hugað að aðstandendum, þar sem aðgengi að upplýsingum og stuðningi er gerður greiðari – ekki síst til handa börnum, sem eiga foreldri í fangelsi. Afstaða hefur frá upphafi boðið fram aðstoð sína gagnvart stjórnvöldum, fjölmiðlum og öðrum þeim sem um málefni fanga fjalla til að slík umfjöllun megi vera sem upplýstust. Mikil vinna hefur verið lögð í að fræða almenning um fangelsi og fangavist, sem og að koma upplýsingum til sjórnvalda í formi umsagna, athugasemda og skýrslna. Afstaða heldur úti heimasíðunni www.afstada.is og einnig Facebook-síðu, þar sem birtar eru fréttir um málefni sem snúa að tilgangi félagsins. Afstaða hyggst á næstunni ráðast í enn frekara fræðslustarf og kynna nýja heimsíðu þar sem kynntur verður til sögunnar s.k. Dómareiknir þar sem hægt verður að skoða með einfaldari hætti hvað felst í nðurstöðu dóma: hvenær dómþoli getur lögum samkvæmt tekið dóm út í samfélagsþjónustu, hvenær fangi getur hafið afplánun á áfangaheimili, undir rafrænu eftirliti og að öðru leyti hvernig framgangi fangavistar skuli háttað. Afstaða hefur hingað til verið rekið með frjálsum framlögum fanga, en umsvif félagsins hafa vaxið verulega á undanförnum árum. Upphaflega stóðu framlög fanga einungis undir hluta tómstundastarfs í fangelsum landsins, en rekstur heimasíðu og frekari miðlun fræðsluefnis fyrir almenning kallar á nokkuð aukin rekstrarkostnað. Því leitum við nú til almennings um framlög til reksturs Afstöðu. Viljir þú styrkja Afstöðu til að efla fræðslustarf, er hægt að leggja inn framlög á styrktarreikning: Reikningsnúmer: 0152-05-260678 Kennitala: 580205-1430 Undirritaður veitir fúslega frekari upplýsingar í síma 789-0717 eða í tölvupósti: formadur@afstada.is Með bestu kveðju, Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
January 2024
|