Eitt af verkefnum Afstöðu, félags fanga, er að veita föngum af erlendu bergi brotnu leiðsögn en þeir eiga það flestir sameiginlegt að þekkja ekkert til íslenskra laga, starfshátta íslenskra lögmanna eða öðru sem tengist því að vera í fangelsi á Íslandi. Sökum þessa hefur Afstaða það hlutverk að eiga í samskiptum við embættismenn eða lögreglu, fyrir hönd erlendu fanganna.
Undanfarin ár hefur félagið ítrekað þurft að senda lögreglustjórum víða um land fyrirspurnir um það hvað hafi orðið af eigum erlendra fanga. Þegar lögreglan handtekur einstaklinga þá er yfirleitt lagt hald á ýmsa muni sem sá handtekni er með á sér, t.d. síma, tölvu, snúrur, skjöl, skilríki, skartgripi og fleira í þeim dúr. Þessir munir eru yfirleitt ekki gerðir upptækir af dómstólum og á lögreglan að skila þeim strax til dómþola eftir að dómur hefur verið kveðinn upp. Í IX. Kafla laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 [sml.] er fjallað um haldlagningarheimildir lögreglu og er meginreglu kaflans að finna í 68. gr. Enginn vafi er á rétti lögreglu til haldlagningar þeirra muna sem um ræðir en krafa fanga og Afstöðu byggir hins vegar á 72. gr. sml. sem er eftirfarandi: „Aflétta skal haldi þegar þess er ekki lengur þörf og í síðasta lagi þegar máli er endanlega lokið nema um sé að ræða: a. muni sem gerðir hafa verið upptækir með dómi, b. muni sem aflað hefur verið með refsiverðum hætti og afhentir hafa verið þeim sem tilkall eiga til þeirra, c. muni sem lagðir hafa verið fram sem sönnunargögn í máli nema sá sem afhendingar krefst þurfi á gagni að halda til að ná rétti sínum eða afstýra réttindamissi. Þegar haldi verður aflétt skv. 1. mgr. skal lögregla hlutast til um að skila munum til þess sem rétt á til þeirra.“ Eitthvað eru þessi lög að vefjast fyrir lögreglustjórunum og í sumum tilfellum Héraðssaksóknara því þeir telja það vera sitt hlutverk að geyma vegabréf og aðra muni. Það er auðvitað ekki rétt og ber þeim að skila munum strax til dómþola, eða í sumum tilfellum til fangelsisyfirvalda þar sem dómþoli hefur aðgang að þeim. Eins og áður segir hefur Afstaða sent nokkur slík erindi að undanförnu og í mörgum tilfellum hefur ekkert gerst. Staðan er þannig að lögreglan og Héraðssaksóknari í sumum tilfellum skila ekki eigum dómþola aftur fyrr en þeir fara úr landi og stundum alls ekki. Því spyr Afstaða: Hvað verður um þessa muni? Hver notar þessa muni? Hvers vegna eru ekki settar verklagsreglur um það hvernig skuli staðið að haldlagningu og skilum á munum? Og hver hefur eftirlit með lögreglunni? Formadur@afstada.is |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
January 2024
|