Gott samband milli fanga og starfsfólks er lykillinn að því að halda sjálfsvígum í fangelsum í lágmarki samkvæmt nýrri rannsókn. Rannsóknin sýndi að nauðsynlegt er að tengsl milli fanga og starfsfólks fangelsis séu náin til þess að starfsfólkið geti séð hvaða fangar eru í áhættuhóp. Rannsakendur frá Cambridge háskólanum skoðuðu reynslu, þekkingu og skoðanir starfsfólks fangelsa á sjálfsmorðum fanga og hvernig væri tekið þeim. Í ljós kom að starfsfólk hafði aðeins sína eigin reynslu til að þekkja þá fanga sem eru í áhættuhóp og einnig var það einungis reynsla þeirra sem sýndi þeim hvernig ætti að takast á við vandamál þeirra fanga. Starfsfólkinu fannst þó tíma- og fjármagnsskortur hafa mikil áhrif á að sú reynsla gæti nýst í eitthvað uppbyggilegt hvað varðar forvarnir og aðstoð. Rannsakendurnir halda fram að það starfsfólk sem skilur áhrif fangelsisumhverfisins hafi jákvæð áhrif á fanga og að það minnki líkur á sjálfsvígum. En það sem þessi ákveðna rannsókn sýnir einnig að ekki er næg þjálfum á félagslegu hliðinni hjá fangavörðum þar sem þeirra aðferðir til að takast á við fanga í áhættuhópi og sjálfsvíg voru komin með þeirra eigin reynslu. Hér á landi hefur mikið verið talað um náin samskipti fanga og starfsfólks og hvernig það hefur skilað sér til dæmis í lítilli neyslu í þeim fangelsum þar sem sú nálgun er notuð.
Hver er þjálfun fangavarða á Íslandi? Fangavarðarskólinn á Íslandi var í heildina í níu mánuði með starfsþjálfun. Samkvæmt reglum frá dóms- og kirkjumálaráðuneyti frá árinu 2007 skal „Fangavarðanám [...] vera þrískipt, þ.e. grunnnám, starfsþjálfun í fangelsi að lágmarki í 2 mánuði og framhaldsnám, samtals allt að 9 mánuðum“. Hér áður fyrr skiptist nám fangavarða á þennan hátt: · Nýliðanámskeið 35 stundir · 14 vikna Grunnnám · 10 vikna verkleg þjálfun í fangelsi · 12 vikna framhaldsnám Grunnnámið innihélt fangelsisfræði, afbrotafræði, lögfræði, félagsráðgjöf, siðfræði, tölvumál, öryggismál, tök og sjálfsvörn líkamsrækt ofl. Það er því spurning hversu mikla þjálfun fangaverðir fá í félagsráðgjöf t.d. en það hlýtur að vera grundvöllur fyrir því að skilja umhverfi fangans og ná góðri tengingu við hann. Framhaldsnámið sem var tólf vikur innihélt verklegar æfingar, hópverkefni tengt starfinu, málstofu, æfingar undir stjórn þjálfara o.fl. Vegna niðurskurðar er námið í dag aðeins tólf vikna nám það sem öllu er pakkað saman. Það er því ljóst að ekki er farið djúpt i neinn félagslegan hluta í fangavarðanámi og getur þjálfun sem fer fram á svo stuttum tíma varla talist nægileg til að sinna þessu starfi. ritstjorn@afstada.is *Starfsfólk í fangelsum á Íslandi byrjar vinnu sína í fangelsum og fer svo í námið síðar. |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
January 2024
|