Taka þarf menntakerfið í fangelsum landsins til gagngerrar endurskoðunar. Fyrir hverja milljón sem sett væri í menntun fanga myndu milljónir sparast vegna lækkandi endurkomutíðni. Menntun í fangelsum snýst ekki um að verðlauna slæma hegðun heldur leiðréttingu á skemmdum einstaklingi.
Tillaga okkar er sú að tekið verði upp hvatningakerfi, ef fangi næði að útskrifast úr námi í afplánun, t.d. með stúdentspróf eða sveinspróf og fyrirmyndar hegðun, ætti hann möguleika á reynslulausn eftir helming refsitímans, þá á skilorði að sjálfsögðu. Þetta hefði í för með sér breytta stöðu fyrir fangann við lok afplánunar, hann hefði eitthvað í farteskinu sem aðstoðaði við aðlögun að samfélaginu á ný. Auk þess felst í fyrirkomulaginu sparnaður fyrir ríkið því biðlistar myndu styttast, það vita allir sem vilja að skortur á menntun, félagslegar aðstæður og fleira helst í hendur við fangavist. Minni endurkomutíðni þýðir minni kostnaður við að aðstoða fanga og halda úti dýru fangelsiskerfi, og svo ekki sé talað um færri glæpi eftir að fangar fari í gegnum endurhæfingu áður en þeir eru aftur frjálsir. En kostir náms í fangelsum nær langt út fyrir sparnaðinn á peningum; fangar í námi byrja oft að sjá sig í öðru og betra ljósi. Það er sama hvaða aðstæður komu þeim í réttarvörslukerfið, á meðan þeir læra, þá byrja þeir að sjá fyrir sér bjartari framtíð eftir afplánun. Þeir geta séð sjálfa taka ábyrgð og geta séð fyrir fjölskyldu, sem er eitthvað sem þeir allir þrá. Þá skilja þeir það að ef þeir vinna vel fyrir hlutunum, eiga þeir möguleika á árangri. Hugsunin um að geta orðið eitthvað framkallar stolt og sjálfstraust, er það ekki nokkurn veginn það sem endurhæfing snýst um? Fangelsisyfirvöld hljóta að geta tekið undir tillögu sem þessa því ef þau ná að veita föngum handleiðslu og menntun, skilar stofnunin út betra fólki og árangur mælist af starfi fangelsanna. Það tekst ekki alltaf en stundum og þá er það þess virði. Í Danmörku og víðar á Norðurlöndunum hefur slíkt fyrirkomulag tíðkast, haldnar hafa verið ýmsar keppnir, t.d. í matreiðslunámi fanga þar sem verðlaunin eru einmitt reynslulausn eða að hætt verði við að senda viðkomandi fanga úr landi eftir afplánun. Fáum Fangelsismálastofnun, stjórnvöld, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, sveitarfélögin, skólana og Afstöðu til þess að taka saman höndum og útskrifa fólk sem á möguleika í lífinu eftir afplánun, greiðir skatt og lifir lífi án glæpa. Það er hægkvæmast fyrir samfélagið, mig og þig! |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
January 2024
|