Stundum festast Íslendingar í umræðunni um form fremur en innihald. Hvort á að skrifa pyndingar eða pyntingar? Nefnd Evrópuráðsins um varnir gegn pyndinum og annarri vanvirðandi meðferð (Committee for the Prevention of Torture = CPT), sem kemur hingað til lands í eftirlitsferðir, hefur stundum verið kölluð Pyndinganefnd Evrópu – líkt og um sé að ræða nefnd sem fari milli landa og pyndi fólk. Innihaldið er hvort eð er svo fjarri íslenskum veruleika. Í síðustu viku lagði Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata fram fyrirspurn varðandi pyndingar og tilmæli Sameinuðu þjóðanna til íslenskra stjórnvalda um að pyndingar verði gerðar refsiverðar. Stjórnvöld hafa ekki tekið varnir gegn pyndingum alvarlega. Valfrjáls bókun Sameinuðu þjóðanna um varnir gegn pyndingum er gott dæmi um það. Bókunin var undirrituð af Íslands hálfu árið 2003, en hefur ekki enn verið fullgild nú rúmum tíu árum síðar. Undirritun alþjóðasamninga er eins og trúlofun. Hún er fyrirheit um að þú ætlir þér að skuldbinda þig. Engin formleg skuldbinding felst í trúlofunninni einni sér, sem getur auðvitað verið þægilegt. Pyndingaklefinn á Akureyri Þegar CPT-nefnd Evrópuráðsins kom til Íslands árið 2012 fannst svo kallaður planki á Litla-Hrauni sem hafði verið notaður til að tjóðra niður fólk. Svipaði búnaðinum til nokkurs sem nefndin hafði fundið á Litla-Hrauni og látið fjarlægja átta árum áður. Var farið fram á að plankinn yrði fjarlægður án tafa. Nefndin gerði líka athugasemdir við gæsluvarðhaldsklefann á Akureyri. Á honum er enginn gluggi, enginn klukka eða nokkuð sem gefur skynfærum merki um hvaða tími sólarhringsins er. Þetta er eins konar pyndingaklefi. CPT-nefndin gerði athugasemdir við klefann; annað hvort yrði að bæta á hann glugga, eða taka úr notkun. Í svari innanríkisráðuneytisins til nefndarinnar kemur fram að íslensk stjórnvöld ætli að gera hvorugt! (málsgr. 49, bls. 17) Umsögn um OPCAT Á föstudaginn rennur út umsagnarfrestur um þingsályktun til fullgildingar á bókun Sameinuðu þjóðanna um varnir gegn pyndingum (OPCAT). Afstaða hefur þegar sent utanríkismálanefnd umsögn sína, enda um sérlega mikilvægt mál að ræða. Það er kominn tími til að Íslendingar taki pyndingarhugtakið alvarlega og skuldbindi sig á alþjóðavettvangi. Það er ekki boðlegt að pyndingaklefinn á Akureyri sé enn í notkun þrátt fyrir tilmæli alþjóðlegra eftirlitsaðila. Og fyrir þá sem eru enn að velta fyrir sér hvort á að nota d eða t í pyndingar (eða pyntingar), þá skiptir það ekki máli málfræðilega – en skiptir öllu máli að sé ekki stundað á Íslandi árið 2014. ritstjorn@afstada.is |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
January 2024
|