Kjartan Kjartansson, geðlæknir lét af störfum í ágúst 2013. Hann hafði verið í 20% stöðu við að sinna skjólstæðingum á Litla-Hrauni, sem þýðir að hann kom þangað tvisvar í mánuði. Þegar hann lét af störfum sagði hann í viðtali við Morgunblaðið: „Kerfið er þannig að Heilbrigðisstofnun Suðurlands veitir geðheilbrigðisþjónustu með geðhjúkrunarfólki og geðlæknum. Á hinn bóginn starfa sálfræðingar og félagsráðgjafar frá Fangelsismálastofnun í fangelsinu. [...] Við erum ekki að vinna inni í sama kerfi og ég sé ekki hvað sálfræðingurinn er að gera og hann sér ekki hvað ég er að gera. Að auki hittumst við ekkert. Með þessu er hætta á að menn tvívinni hlutina,“ Auðvitað eiga helbrigðisstarfsmenn, þó þeir þjónusti stofnanir eins og fangelsi, að starfa innan heilbrigðiskerfisins. Þetta er leyst með þjónustusamningum við heilbrigðisstofnanir sem eru starfræktar í nágrenni við þá staði sem á að þjónusta. Með því er tryggt að einstaklingar sem þurfa á slíkri þjónustu að halda, hvort sem er á Suðurlandi, Snæfellsnesi eða Akureyri fái þá aðstoð sem þeir þurfa á að halda. Úr fílabeinsturninum Fangelsismálastofnun hefur hins vegar leyst þetta með því að fjölga ‘sérfræðingum’ á skrifstofu sinni í Borgartúni. Í stað þess að færa þjónustuna nær þeim sem á henna þurfa að halda er báknið stækkað. Nú vill forstjóri stofnunarinnar að stöðu námsráðgjafa verði komið fyrir í fílabeinsturninum. Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis hittir naglann á höfuðið þegar hún andmælir þessu og segir: „ég er ekki fylgjandi því að taka þessa fjármuni af fjölbrautaskólanum og flytja þá til Fangelsismálastofnunar, vegna þess að ég tel mikilvægt að nota þá reynslu sem er komin á hjá Fjölbrautaskóla Suðurlands og nota þá beintengingu sem er komin við menntakerfið,“ Með sama hætti og nærstofnanir ættu að sinna sálfræðiþjónustu við skjólstæðinga fangelsisyfirvalda eiga auðvitað nærstofnanir að sinna námsráðgjöf og kennslu í fangelsunum, hvort sem þau eru staðsett á Suðurlandi, Snæfellsnesi eða Akureyri. SJÁ EINNIG: dómþola verði úthlutað félagsráðgjafa frá sínu sveitafélagi. En það virðist einmitt vera tilhneiging hjá bákninu að vilja stækka og oft fjarlægjast viðfangsefnið. ritstjorn@afstada.is |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
January 2024
|