Árið 2007 var gerð tilraun á einum gangi Litla-Hrauns að við keyptum inn og elduðum sjálfir mat. Áður hafði aðeins verið í boði s.k. bakkamatur, sem var aðkeyptur og kom tilbúinn á bökkum. Sumir starfsmenn voru í upphafi svartsýnir á að fangar gætu eldað og töldu slikt fyrirkomulag myndi seint ganga upp. Auðvitað voru margir í hópnum sem aldrei höfðu eldað sjálfir, en tilraunin tókst vonum framar. Ári síðar var svo komið upp eldhúsum á öllum göngum í nýjasta húsinu á Litla-Hrauni (þessu með bláa turninum) auk þess sem sett var upp eldhús í endurbyggðri aðstöðu á Akureyri sem tekin var í notkun árið 2008. Þetta er breyting sem hefur reynst gífurlega vel og má þakka framsýni fv. fangelsismálastjóra, Valtý Sigurðssyni. Fangarnir hafa lært hver af öðrum að panta mat, elda, þrífa eldhúsin og gera greiðsluáætlun. Sjálfstraust eykst, ábyrgðartilfinning vex og samvinna verður með öðru sniði auk þess sem sjálfbjargarviðleitni verður meiri en ella. Fæðisfé fanga hefur ekki hækkað frá því að þessu kerfi var komið á árið 2008 en forstjóri fangelsismálastofnunar hefur nú heitið því að fæðisfé verði hækkað um áramótin, enda löngu tímabært. Verðlag hefur hækkað gífurlega á þeim sex árum sem liðin eru, verðlag í Rimlakjörum er 15% hærra en í verslunum og síðan bætist við fyrirhugaður matarskattur. Varðstjórarnir bakarar að mennt Í fangelsinu á Akureyri er mjög virk samstaða um eldamennsku og þrif. Hér er algengt að fangar sameinist um eldamennsku og innkaup til að hagræða eldunartíma, spara í innkaupum og njóta félagsskapsins. Við skiptumst á að elda og fáum ráð hjá hvorum öðrum eða starfsfólkinu, sem er allt að vilja gert til að rétta hjálparhönd við eldamennsku eða bakstur. Fyrir vikið algengt að við bjóðum starfsfólkinu upp á bakkelsi, nú eða í mat. Við skelltum einmitt á dögunum í uppskrift úr dönsku fangelsi og var varðstjórinn Júlíus Þór Tryggvason fenginn til að sýna okkur handbragðið, enda bakari að mennt – líkt og varðstjórinn sem vinnur vaktir á móti honum. Ég læt fylgja með uppskriftina af brauðinu: "eitt besta brauð sem ég hef smakkað", sagði einn vistmaðurinn. Bon provecho! UPPSKRIFT: Kryddbrauð 6 stk. |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
January 2024
|