AFSTAÐA hefur lengi bent á mikilvægi þess að fangar hafi möguleika á að stunda verknám meðan á afplánun stendur, enda er menntun lykillinn að betrun. Um það sjónarmið virðist vera mikill samhljómur. Fangar sem koma úr afplánun og hafa ekkert í farteskinu eru líklegri til að brjóta af sér aftur og koma aftur í fangelsi. Tilgangur betrunarvistar er þó að koma í veg fyrir endurkomur í fangelsi, en tíðni endurkomu í fangelsi á Íslandi er alltof há. Fangelsismálastofnun ríkisins, og þeim sem þar starfa (lögfræðingum, félagsráðgjöfum og sálfræðingum) á að vera full kunnugt um að sjaldgæft er að einstaklingar geti hafið nám að lokinni afplánun. Kemur þar margt til, eins og nýleg aldurstakmörk framhaldsskóla, þeir fá hvorki námslán né framfærslu og neyðast því flestir til þess að leggja námið á hilluna þegar úr fangelsi er komið. Því er mikilvægt að boðið sé upp á stuttar leiðir í starfsnámi/verknámi sem nýtist einstaklingunum til jákvæðrar þátttöku í samfélaginu. AFSTAÐA hefði talið réttara að fangar gætu nýtt þann tíma sem þeir afplána dóm til að byggja einstaklinginn upp til virkrar þátttöku í samfélaginu - og þar með atvinnulífinu - með aðgangi að starfsþjálfun og verknámi. Það hlýtur að vera megintilgangur fangelsisvistar að fækka endurkomum í fangelsin og því harmar AFSTAÐA að ekki sé stutt betur við fanga sem vilja byggja sig upp fyrir jákvæða þátttöku í samfélaginu. AFSTAÐA telur starfsmenntun einn mikilvægasta þátt í betrun fanga og hvetur innanríkisráðuneytið til að hafa þá stefnu að leiðarljósi í vinnu við breytingu á lögum um fullnustu refsinga, sem unnið er að þessa dagana. formadur@afstada.is |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
January 2024
|