Hryggð mín verður meiri eftir því sem ég kynnist stjórnmálum betur. Það verður svo margt að breytast.
Gott er að geta rætt mál til þrautar. Um það erum við öll sammála. Alþingi hefur árum saman fallið í þá gryfju að stjórnarfrumvörp eru lögð seint fram, þau eru illa rekin og svo, þegar hillir undir sumarfrí þingmanna, þarf að semja um hver þeirra verða að lögum. Þingmenn verða að átta sig á því að frumvörpin snúast um manneskjur. Ástæða þess að ég rita þessi orð er sú að nú hefur verið til meðferðar hjá Alþingi lagafrumvarp sem ætlað er að lengja möguleika dæmdra manna til að taka út dóm í samfélagsþjónustu. Slíkt úrræði hefur verið talið nauðsynlegt hér á landi til að draga úr covid-áhrifum og biðlistum eftir fangelsisplássum og að veita fólki, sem ekki hefur alvarlegustu afbrotin á bakinu, tækifæri til að halda lífinu áfram en greiða samt skuld sína við samfélagið. Þetta er líka mjög mikilvægt úrræði í þeim tilvikum sem fólk hefur beðið árum saman eftir að afplána 13-24 mánaða dóm. Fólk sem hefur beðið í mörg ár eftir að komast í afplánun og er komin með maka, börn, íbúð og fastar tekjur. Fólk sem er orðið hæft til að taka út dóm sinn í samfélagsþjónustu en nú að öllum líkindum verður að fara í fangelsi og á að hættu að missa allt það góða sem byggt hefur verið upp á síðustu árum og batinn í mikilli hættu. Mikilvæg ástæða lagafrumvarpsins er einni sú að koma á móts við reynslulausnir þeirra sem hafa setið inni á covid tímum þar sem afplánun hefur aldrei verið þungbærari Frumvarpið um afglæpavæðingu neysluskammta er sennilega allra mikilvægasta frumvarp sem liggur fyrri á alþingi þessi misserin og það er sorglegra en tárum taki að það nái ekki í gegn. Lítilsvirðingin er alsráðandi og með öllu óskiljanlegt að það sé til fólk sem ekki vill fræðast til að skilja þennan vanda betur. Synd og skömm. Líf fjölmarga er í hættu og fólk mun beint og óbeint deyja vegna fordóma einstakra stjórnmálamanna sem þó telja að þeir viti lausnina án þess nokkurn tímann að hafa séð vímuefni. Miðflokkurinn með Sigmund Davíð í fararbroddi hefur ekki aðeins hótað málþófi heldur hefur flokkurinn haldið stöðugt málþóf undanfarna daga og tafið öll mál á dagskrá. Nokkrir þingmenn flokksins hafa lagst svo lágt að telja upp t.d. öll skátafélög landsins og öll íþróttafélög, ekki til að aðstoða þau á neinn hátt heldur eingöngu til að tefja. Flokkurinn hefur gefið út að hann sé á móti fjölda mála og ég veit fyrir víst að dagskránni var stillt upp þannig að fyrst voru sett inn mál sem þeir eru ekki á móti, svo önnur. Það er því sorglegt að horfa upp á kjörna alþingismenn leika sér að lífi og heilsu fólks í sandkassaleik á alþingi og vera á móti aðeins til að vera á móti og til þess að fá meiri umfjöllun um sig. Það er ekki að starfa að heilindum fyrir land og þjóð. En svo er kannski ekki málþófið sem fer mest fyrir brjóstið á mér heldur handahófskenndar lausnir og útúrsnúningar klaustursmanna. Ég get ekki annað gert en að biðla til allra sem almennt hafa áhuga á landi og þjóð að kynna sér málefnin rækilega og muna þá fátæklegu hugmyndir sem Miðflokkurinn hefur í sinni smiðju. Þetta eru sömu rök og voru notuð til að réttlæta bókarbrennur í Róm. Það þurfti að berjast við hið illa eins og Sigmundur Davíð kallaði það. Það er oft þannig í lífinu og sögunni að þeir sem þekkja tiltekin mál alls ekki neitt grípa pennann og setja á blað eitthvað sem þeir halda eða gætu hugsað sér að virkaði. Það er líklega einmitt þess vegna sem staða okkar í svokölluðu fíkniefnastríði versnar. Þeir tjá sig hæst sem vita ekkert um hvað málið snýst og segja; berjumst við hið illa. Ég sé fyrir mér stjórnmálamann sem liggur í baðkari á sunnudagsmorgni að farast úr timburmönnum vegna áfengisdrykkju kvöldið áður. Í heitu vatninu staldrar hugurinn við flókið mál sem margir sprenglærðir sérfræðingar hafa reynt að leysa, en ekki tekist. Stjórnmálamaðurinn fær sömu hugmynd og prestar og klerkar fortíðarinnar hafa fengið allt frá upphafi. Væri ekki best að læsa það inni í skáp eða jafnvel að kveikja bara í því. Og mín hugmynd er á þessa leið. Það skiptir öllu máli að Miðflokkurinn komist ekki aftur á þing. Við höfum við ekkert með flokk að gera sem vinnur svo gott sem að því að setja líf og heilsu okkar fólks í hættu. |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
January 2024
|