Tillögur að framgangi og betrun í fangelsiskerfinu
Tillögurnar eru settar fram með hliðsjón af norskri og
danskri afplánunar-tilhögun og voru kynntar á fundi stjórnar Afstöðu með forstjóra fangelsismálastofnunar á Litla-Hrauni 22. október 2014. Tilgangurinn með framlagningu tillagnanna er fyrst og fremst að fækka endurkomum í
fangelsi, að byggja upp einstaklinga sem hafa lágt sjálfsmat og hafa villst af
braut, auk þess að fækka vímuefnaneytendum innan fangelsisins.
- Dómþoli sem ekki hefur áður gerst brotlegur
og fær undir 2 ár í refsingu afpláni í
rafrænu úrræði. Til að koma í veg fyrir skaðsemi sem það að fara í fangelsi
getur haft í för með sér, atvinnumissi, fjölskyldu- og vinamissi, falla í
rangan félagsskap o.fl. teljum við vænlegra til árangurs að fólk með
minniháttar dóma fari aldrei inn í fangelsiskerfið. Oft hafa ungir og
áhrifagjarnir einstaklingar, með minniháttar dóma, farið í fangelsi og kynnst þar
mönnum sem eru ekki á leið til betrunar. Þeir jafnvel líta upp til þeirra og
dragast inn í harðari afbrot að afplánun lokinni.
- Að reglan verði sú að einstaklingar sem hafa
ekki áður gerst brotlegir og fá dóm sem er undir
7 ár hefji afplánun í opnu úrræði. Þá er hugað að sömu ástæðu og í lið
nr.1. Standist viðkomandi hins vegar ekki þær kröfur sem gerðar eru til þeirra
sem vistast í opnum úrræðum séu þeir einstaklingar sendir í lokað fangelsi.
- Lögð er til sú breyting að í stað þess að
hafa rétt til leyfa utan fangelsis eftir að 1/3 dóms hefur verið afplánaður (þó aldrei
síðar en eftir 4 ára afplánun), eins og er í dag, verði reglan sú að taka dagsleyfa hefjist eftir afplánun 1/4
dóms. Dæmi er um að menn sem fá reynslulausn eftir að hafa afplánað helming
dóms hafi aldrei kost á því að nýta sér dvalarleyfi, þar sem þeir uppfylla
skilyrði til afplánunar á Vernd áður en 1/3 af dómi (sá
tími sem miðað er við í dag að taka dagsleyfa hefjist). Miðað við núverandi
fyrirkomulag hefst réttur til töku dagsleyfa eftir 4 ár, hvort sem menn eru með
12 eða 16 ára dóm. Megintilgangur breytingarinnar þó sá að dómþoli missi ekki
tengsl við venjulegt fólk og venjulegt líf, en dæmi eru um einstaklinga sem
hafa lítið annað að gera en að heimsækja menn sem þeir hafa afplánað með.
- Einstaklingar hafi möguleika á námsþátttöku utan fangelsis þegar þeir
uppfylla skilyrði til dvalar utan fangelsis, hafa sýnt af sér fyrirmyndarhegðun
í fangelsi og stunda nám við námsgrein sem krefst þátttöku í námslotum. Það hefur
sýnt sig að einstaklingar sem mennta sig og vinna sér inn ákveðin
starfsréttindi gengur betur að feta sig í samfélaginu en ella að lokinni afplánun.
- Að dómþola sem hefur afplánun verði úthlutað félagsráðgjafa frá sínu
sveitafélagi sem heldur utan um hans mál, veitir honum upplýsingar varðandi
framgangs- og betrunarstefnu fangelsisins og ýti undir að hann nýti sér þau
úrræði sem honum stendur til boða. Tilgangurinn er að auðvelda eftirfylgni með
einstaklingnum þegar hann snýr út í samfélagið að nýju og tryggja að hann fái
þá aðstoð sem sveitarfélögin bjóða upp á. Með því að skipuleggja slíka aðstoð
betur en nú er gert fær samfélagið meira til baka fyrir þá aðstoð sem veitt er,
en hefur ekki verið nægjanlega markmiðsmiðuð. Þannig getur félagsráðgjafinn
fylgst með, frá upphafi, hvert einstaklingurinn hyggst stefna í vinnu eða námi
og aðstoðað við að sækja þau meðferðarúrræði sem einstaklingurinn hefur hug á.
Félagsráðgjafar fangelsismálastofnunar verði síðan tengiliðir við
félagsráðgjafa hjá félagsþjónustum sveitarfélaganna.
- Eftir ár á dvalaleyfum fyrir utan fangelsi,
hafi vistmaður unnið sér það inn, fái vistmaður tækifæri á 2 daga leyfi. Þá er verið að hugsa til að menn virkji samband við
sína nánustu, börn, maka, foreldra, systkin. Því í 12 tíma leyfi er mikið um
stress og áreiti fyrir vistmenn, þeir reyna að gera allt á 12 tímum, og væri
því hægt að eyða meiri tíma með hverjum og einum.
- Þegar einstaklingur afplánar á áfangaheimili
Verndar verði 2ja daga leyfin helgarleyfi
sem gildi allar helgar. Þá verði hætt
að gera kröfu um viðveru á Vernd virka daga, milli 18:00 og 19:00. Algengt
er að einstaklingar sem eru að feta sig út í lífið taki að sér störf í
þjónustugreinum og iðnaði. Hvort sem um er að ræða starf í verslun, byggingarvinnu
eða skyndibitastað er vinnutíma vart lokið um kl. 17:00 þannig að einstaklingur
geti lokið störfum og ferðast á dvalarstað. Þá eru dæmi um að nám, s.s. nám til
matsveins og háskólanám í fjarnámi, hefjist kl. 17:00 og standi fram eftir
kvöldi. Ekki er séð að slíkar hömlur, sem þær að vera á dvalarstað sínum milli
kl. 18:00 og 19:00, þjóni sérstökum tilgangi enda gengst einstaklingurinn undir
að ávallt sé hægt að ná í hann símleiðis.
- Að reglan
verði sú að sé vistmaður búin að vinna sér inn rétt til dvalar fyrir utan
fangelsi verði það fært úr 30 daga
fresti og yfir í 12 leyfi á ári. Samkvæmt heimildum frá Kriminalforsorgen í
Danmörku hafa vistmenn rétt á leyfi til dvalar fyrir utan fangelsi á 3 vikna
fresti, hvort sem það er dagsleyfi eða helgarleyfi. Nýti vistmaður sér ekki
leyfið þá fellur það ekki út heldur safnast upp. Þ.e.a.s að ef 6 vikur líða frá
því að vistmaður nýti sér leyfi, þá getur hann tekið út 2 í einu. Tilgangurinn er
sá að vistmaður nýti sér þessi úrræði og haldi fast í tengsl sem hann hefur við
ættingja og vini. Dæmi eru um að skjólstæðingur fangelsismálastofnunar verði af
2-3 dvalarleyfum á ári því hann er að hagræða og seinka leyfum í kringum
viðburði sem eiga sér stað í hans persónulega lífi fyrir utan fangelsi, t.d
afmæli ættingja.
- Að reglan verði sú að nýti vistmaður sér ekki
dvalarleyfi sem hann á rétt á verði hann
ekki af því heldur eigi hann það inni og geti þá nýtt sér það næst
þegar hann á rétt á dvalarleyfi. Dagsleyfi eru sérlega mikilvægur þáttur í að
viðhalda tengslum við vini og vandamenn, því er núverandi fyrirkomulag verulega
gallað þar sem fjöldi leyfa á ársgrundvelli fellur í raun niður þar sem oft
geta liðið meiri en 30 dagar á milli leyfa.
- Að lög um
fullnustu refsinga á rafrænu eftirliti verði breytt þannig að dómþolar sem
afplána á rafrænu eftirliti þurfi ekki að hafa fyrst afplánað á áfángaheimili Verndar
heldur geti þeir strax hafið afplánun á
rafrænu eftirliti. Þannig er opnað fyrir möguleikann á að dómþolar sem eru
með styttri dóma hefji afplánun með rafrænu eftirliti. Það kemur í veg fyrir að
dómþolar komist í kynni við vistmenn sem eru að afplána, eða hafa verið í afplánun,
í fangelsum. Standist einstaklingur ekki þær kröfur sem gerðar eru til þeirra
sem afplána undir rafrænu eftirliti sé viðkomandi hins vegar látinn afplána í
opnu fangelsi.
- Heimildir
til að veita einstaklingum reynslulausn, helming eða á milli ½ og 2/3, hafa verið lítið nýttar. Nauðsynlegt er að meta, t.d. ef
einstaklingur er kominn á skrið í námi, hvort
vænlegra sé til árangurs að veita reynslulausn fyrr í einhverjum tilfellum
þannig að viðkomandi geti tekið þátt í verklegum hluta náms eða að öðru leyti
skapa samfellu – og framgang – í uppbyggjandi starfi sem sé líklegt til að
einstaklingurinn snúi síður í fangelsi að nýju.
- Fellt verði út skilyrði um að
einstaklingur sé á dvalarstað sínum milli kl. 18:00 og 19:00 þegar afplánað er
undir rafrænu eftirliti. Algengt er að einstaklingar sem eru að
feta sig út í lífið taki að sér störf í þjónustugreinum og iðnaði. Hvort sem um
er að ræða starf í verslun, byggingarvinnu eða skyndibitastað er vinnutíma
vart lokið um kl. 17:00 þannig að einstaklingur geti lokið störfum og ferðast á
dvalarstað. Þá eru dæmi um að nám, s.s. nám til matsveins og háskólanám í
fjarnámi, hefjist kl. 17:00 og standi fram eftir kvöldi. Ekki er séð að slíkar
hömlur sem að framan greinir þjóni sérstökum tilgangi, enda gengst
einstaklingurinn undir að ávallt sé hægt að ná í hann símleiðis.