Opin fangelsi – leið til betrunar
Þegar fréttir berast úr fangelsum landsins leggja aðstandendur fanga við hlustir. Þeir eru órólegir, enda umhugað um líðan sinna nánustu og trúa oft ekki þegar einstaklingur sem er í fangelsi segist hafa það fínt. Vist í fangelsi á enda ekki að vera meira íþyngjandi en að því leyti sem felst í frelsissviptingunni einni sér.
|
Birt 18. nóvember 2014
Höf.: talsmaður fanga, Kvíabryggju „Það er samdóma álit fagaðila stofnunarinnar að í raun uppfylli fleiri fangar skilyrði fyrir vistun í opnara fangelsi, annað hvort frá upphafi vistunar eða síðar á afplánunartímanum [...]“ |
Hér á landi eru opin fangelsi aðeins rúm 20% af rýmum meðan þau eru um 40% t.d. í Noregi, sem við berum okkur gjarnan við enda með lægstu endurkomutíðni á Norðurlöndunum – og þó víðar væri leitað. Því eru færri en vilja (og þyrftu) sem komast í afplánun í opnu fangelsunum á Íslandi, sem eru að Sogni í Ölfusi og Kvíabryggju í Grundarfirði. Reynslan af þeim, bæði hérlendis og erlendis, er enda góð – eins og lág endurkomutíðni í Noregi ber vitnisburð um.
Tilgangur opinna fangelsa er að gefa einstaklingunum frelsi til að sinna námi og vinnu til að geta orðið nýtur þjóðfélagsþegn – nokkuð sem við getum kallað betrun. Að þessu markmiði vinna starfsmenn og vistmenn saman, sem samherjar en ekki andstæðingar. Það er enda markmið dóma, og hagur samfélagsins, að einstaklingur sem er frelsissviptur tímabundið komi betri úr þeirri vist og undirbúinn undir þátttöku í samfélagi frjálsra manna. Það kemur yfirleitt fljótt í ljós hvernig einstaklingar, sem hafa hrasað inn í fangelsin vegna neyslu lyfja og annarra ávanabindandi efna, gengur að takast á við fíkn sína þegar þeir fá meira frelsi. Þannig voru þrír einstaklingar nýlega sendir frá opnu fangelsi að Kvíabryggju; tveir sem höfðu vart verið þar í mánuð og einn sem átti aðeins eftir nokkra daga áður en hann átti að losna úr fangelsi. Ef ástæðan fyrir neyslu, þegar svo stutt er í lausn, er ótti við að takast á við samfélagið hefur markmiðið - að aðstoða einstaklinginn við að feta sig á ný út í samfélagið – ekki tekist fyllilega og ber því að skoða með það fyrir augum; að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig. Vegna ákveðinna kerfisgalla við að ná markmiðinu, að stuðla að farsælli lausn út í samfélagið, hefur Afstaða lagt fram tillögur um framgang og betrun í 12 liðum: Það er hins vegar fjarri sanni að i opnum fangelsum sé svigrúm til viðvarandi neyslu fíkniefna. Ef eitthvað er, er of lítið svigrúm til að gefa áminningar þannig að einstaklingurinn geti bætt ráð sitt – og þeir því sendir í lokað fangelsi um leið og þeir hrasa í opnum fangelsum. |
skjárEinn - Aðstandendur fanga
Tobba kynnti sér hvernig það er að vera aðstandandi fanga og ræddi meðal annars við föður fanga á Litla-Hrauni sem segist aldrei hafa þurft að hugsa sig um hvort hann ætti að standa með syni sínum: „börnin manns eru börnin manns og maður reynir að fylgja þeim í gegnum þykkt og þunnt á meðan maður getur, sagði hann og ég fann að hann meinti hvert orð", segir Tobba í bloggi um þáttinn. "Ég fékk einnig bréf frá unglingsstúlku sem á föður inn á Litla-Hrauni þar sem hún lýsir því hversu erfitt það sé að búa við þessar aðstæður. Ég vona að þetta bréf sem og þátturinn auki skilningin í garð aðstandenda og geri einhverjum lífið bærilegra."
|
Að eiga pabba í fangelsi! Fangaprestur þjóðkirkjunnar
|