AtVinna í fangelsum
Tillögur Afstöðu til fjölgunar atvinnutækifæra og verknáms
Lykilatriði í betrunarferli er að gefa einstaklingum tækifæri til fjölbreyttrar vinnu og náms, sérstaklega verknáms. Í þeim efnum stöndum við langt að baki Danmörku og Noregi sem hafa þó sýnt með rannsóknum á eftirfylgni að ber ótvíræðan árangur.
|
Hér til hliðar er hægt að kynna sér hvaða störf fara fram í nágrannalöndum okkar, sem við viljum helst bera okkur saman við. Margar af þeim hugmyndum hafa verið staðfærðar með það í huga að þær verði framkvæmdar með sambærilegum hætti hér á landi. Við erum enda ekki að finna upp hjólið.
Knut Storberget sem var dómsmálaráðherra Noregs 2005-2011 hafði áður starfað sem lögmaður/verjandi og heimsótti í sinni ráðherratíð hvert og eitt fangelsi í Noregi. Að auki lagði hann fram s.k. hvítbók (Stortingsmelding 37 - straff som virker) sem gæti útlagst á íslensku sem 'dómar með tilgang'. Þar eru lagðar fram fjölmargar tillögur til úrbóta í fangelsismálum, m.a. um s.k. landsbyggðarfangelsi, með það að markmiði að byggja einstaklinga upp fyrir þátttöku í samfélaginu og koma í veg fyrir endurkomur í fangelsi. Það er einmitt tilgangur og markmið Afstöðu með þeim tillögum sem hér eru reifaðar. Hvað ætluðum við okkur annars með því að dæma fólk: að refsa því og setja svo á hliðarlínuna í samfélaginu? Með aukinni atvinnuþátttöku fanga verður kerfið bæði hagkvæmara og skilvirkara, samfélaginu öllu í hag! |
'ÆRLIG MAT' slær í gegn.
Yngve Mathisen, matreiðslumeistari og deildarstjóri kennslu í veitinga- og matvælagreinum í Halden fangelsinu í Noregi hafði forgöngu um gerð og útgáfu matreiðslubókar sem var sett saman af föngum í matreiðslunámi og prentuð í prentsmiðjunni í Halden fangelsinu. Þá var hönnuð svunta í stíl við bókina, sem er framleidd og áprentuð í prentsmiðjunni auk þess sem hægt er að kaupa saman matreiðslubókina og svuntu - og fá brauðbretti í kaupbæti, sem er auðvitað framleitt á trésmíðaverkstæðinu í Halden fangelsi.