Kvíabryggja, GrundarfirðiParadís, þar sem möguleikarnir eru óþrjótandi.
Skiltið við lóðamörkin, sem á að bægja frá erlendum ferðamönnum, stækkar sífellt á Kvíabryggju. Kirkjufellið sem stendur við bæjarstæðið laðar enda að sér mikinn fjölda ferðamanna á ári hverju. En hvers vegna að bægja öllum í burtu?
Nám í húsasmíðaiðn
Í opnum fangelsum í Noregi er lögð áhersla á að vistmenn búi í smærri einingum/húsum og sjái um sig sjálfir að öllu leyti. Nægt landrými er á Kvíabryggju og því hægur vandi að koma við slíkum lausnum, líkt og er lagt til á Sogni. Byggð væru fimm hús, sem rúmuðu fimm einstaklinga hver. Húsasmíðameistari sem samið væri við tæki jafnframt fanga í vinnu, sem væru nemar í húsasmíðaiðn. Nám í bakara- og matreiðsluiðn Matreiðslumeistari og þeir iðnnemar sem hann hefði á náms-samningi myndu síðan elda hádegismat fyrir alla sem búa á staðnum, en nemarnir sjá um kvöldmat fyrir þá sem ekki búa í sérbyggingum (20 vistmenn búa nú, og myndu áfram, búa í sambýli). Bakaranemar myndu síðan sjá um að baka bakkelsi fyrir morgunverð og kaffitíma, en sinna bóklegum hluta námsins aðra daga. Clink veitingakeðjan í Bretlandi
Í fangelsinu í Cardiff er rekinn veitingastaðurinn The Clink Cymru, sem rekinn hefur verið um tveggja ára skeið og er hluti af námi fanga í matreiðslu- og veitingagreinum. Staðurinn fær einróma lof á Tripadvisor, í fyrsta sæti af 953 veitingastöðum í Cardiff! Í þjónustumiðstöðinni á Kvíabryggju væri tilvalið að bjóða ferðamönnum upp á hráefni af staðnum: ferskan fisk og lambakjöt, sem hluta af námi í veitingagreinum. |
„Það er samdóma álit fagaðila stofnunarinnar að í raun uppfylli fleiri fangar skilyrði fyrir vistun í opnara fangelsi, annað hvort frá upphafi vistunar eða síðar á afplánunartímanum [...]“ Námsmöguleikar
Á Kvíabryggju er aðstaða til fjarnáms góð en enginn samningur við Fjölbrautaskóla Snæfellinga er í gildi um kennslu. Þó hefur verið undirritaður samningur um þjónustu námsráðgjafa frá fjölbrautaskólanum. Matjurtargarður
Í fangelsinu hefur verið ræktað grænmeti, en þó skortir gróðurhús svo rækta megi þar ávexti allt árið um kring. Fjárhús
2011 var komið upp sauðfé í fjárhúsum á Kvíabryggju sem nú er orðið á annað hundrað fjár. Fangelsið er sjálfbært af kjöti og ullin er seld auk þess sem það hey sem gengur af er selt á næstu bæi. Matseld
Daglega er framreiddur matur fyrir á þriðja tug vistmanna og starfsfólks. Unnið er á tvískiptum vöktum, en þó er enginn matreiðslumeistari sem heldur utan um starfsemina, líkt og í Skandinavíu, þar sem hægt er að stunda verklegan hluta iðnnáms í matreiðslu-, framreiðslu, og bakaraiðn. Viðhaldsvinna/starfsnám
Grunnur að trésmíðaverkstæði er í bílskúr á Kvíabryggju, en þó skortir búnað til að hægt sé að sinna kennslu í húsasmíðum. Fiskveiðar
Áhugi er fyrir að kenna vistmönnum handbragð við veiðar og vinnslu afla. Grundarfjörður var enda mikill fiskibær og því hæg heimatökin. Við það yrði byggðin á Kvíabryggju sjálfbær með fisk, skapast myndu störf og þekkingu væri miðlað. |