Noregur - KriminalomsorgenÞar sem endurkomutíðnin er lægst, sennilega í heimi.
Tölverður munur er á möguleikum til fjölbreyttra starfa og verknáms eftir því hvort um er að ræða vistun í opnum eða lokuðum fangelsum. Því hefur verið lögð áhersla á að bjóða upp á vistun í opnum fangelsum, sem eru nú um helmingur fangelsa í Noregi.
Norsk stjórnvöld fóru í gagngerra endurskoðun á stefnumótun sinn í fangelsismálum á árunum 2007-2008, í tíð Knut Storberget sem dómsmálaráðherra. Afstaða hefur þýtt nokkrar síður úr kynningarbæklingi sem gefinn var út um þingsályktunina, sem er einnig að finna á vef Alþingis.
|
BETRUNARSTOFA
Í Noregi og Danmörku heita stofnanir þær sem fara með málefni fanga svipuðum nöfnum; kriminalomsorgen og kriminalforsorgen sem mætti útleggjast á íslensku sem betrunarstofa. Merki þeirrar norsku er auk þess tákn um útrétta hönd meðan það danska sýnir einstakling sem blómstrar. Slík nálgun í nafngift og táknum endurspeglar starf þar sem betrum einstaklingsins er í forgrunni. Það sem meira er, að það er táknmynd þroskaðrar stefnumótunar, umræðu og viðhorfa.
Verslun & Netverslun
Vörur sem framleiddar eru í fangelsum í Noregi eru ekki aðeins seldar á netinu, heldur er einnig hægt að koma við í búð sem rekin er í fangelsinu. Nánar er fjallað um sölu á vörum í umfjöllun um Kvíabryggju.
|
HÉR er svo hægt að nálgast bæklinginn á frummálinu í heild sinni ásamt upplýsingum um stefnumótunina á fleiri tungumálum.
'ÆRLIG MAT' slær í gegn.
Yngve Mathisen, matreiðslumeistari og deildarstjóri kennslu í veitinga- og matvælagreinum í Halden fangelsinu í Noregi hafði forgöngu um gerð og útgáfu matreiðslubókar sem var sett saman af föngum í matreiðslunámi og prentuð í prentsmiðjunni í Halden fangelsinu. Þá var hönnuð svunta í stíl við bókina, sem er framleidd og áprentuð í prentsmiðjunni auk þess sem hægt er að kaupa saman matreiðslubókina og svuntu - og fá brauðbretti í kaupbæti, sem er auðvitað framleitt á trésmíðaverkstæðinu í Halden fangelsi.