Umræðan um það hversu gott þeir hafi það sem afpláni dóma í íslenskum fangelsum dúkkar upp reglulega og orðræðan um fimm stjörnu hótel með öllum helstu þægindum fylgir í kjölfarið. Hneykslast er yfir því að dæmdir menn fái að horfa á sjónvarpið, fara í sturtu á hverjum degi og hafi aðgang að síma. Við sem störfum í þessum geira vitum auðvitað betur en mögulega örlar á skilningi hjá fleirum þessi dægrin.
Tæplega tíu þúsund íbúar landsins eru í sóttkví, og 850 einstaklingar í einangrun, sem stendur. Þar er ekki um eiginlega frelsissviptingu að ræða og í raun ekki hægt að bera aðstæður þeirra saman við dómþola sem sitja á bak við lás og slá. Aftur á móti eru kunnugleg stef sem birtast í viðtölum við þá sem eru í sóttkví og umfjöllun fjölmiðla um ástandið.
Skjólstæðingar Fangelsismálastofnunar hafa ekki ástvini sína sér við hlið. Þeir hafa raunar ekki fengið að sjá fjölskyldu eða vini síðan neyðarstigi var lýst yfir. Afplánunarfangar eru meira og minna inni í klefum sínum, vanvirkir vegna lamaðrar starfsemi í fangelsum. Það er ekki hundleiðinlegt til lengdar heldur mannskemmandi. Þegar ástandið er „eðlilegt“ er það að sama skapi bagalegt. Sálfræðiþjónusta er lítil sem engin, vinna af skornum skammti og hvatning til betrunar fjarlægur draumur. Fangelsin eru geymsla og enginn sem lokið hefur afplánun telur sig hafa haft það gott. Afstaða vill hvetja aðstandendur og vini til þess að gefa þeim gaum sem sitja inni, hafa samband og reyna að létta lund þeirra. Þetta er erfiður tími fyrir alla en ekki síst þá sem eru í fangelsum landsins. Það er ekki eftirsóknarvert að vera í fangelsi venjulega en um þessar mundir hreint út sagt skelfilegt. Ákall vegna aðstæðna í fangelsum -Leynist ónotuð leikjatölva á þínu heimili? „Haldið ykkur heima og spilið tölvuleiki,“ voru skilaboðin frá ítölskum bæjarstjóra á dögunum þar sem hann biðlaði til íbúa bæjarins að virða útgöngubann. Fleiri ráðamenn hafa gert slíkt hið sama og dagblöð á borð við New York Times og Guardian nýverið birt umfjallanir um gagnsemi tölvuleikja á meðan COVID-19 veiran er á sveimi. Þar kom fram að tölvuleikir geti verið skemmtilegir, þeir veiti ánægju en ekki síst huggun á þessum erfiðu tímum, jafnt fullorðnum og börnum. Í fangelsum landsins er staðan þannig þessa dagana að lítið sem ekkert er um að vera. Öll starfsemi hefur verið skorið niður til þess að vernda þá sem afplána dóma sína en kostnaðurinn við þær aðgerðir er sá að fangar eru meira og minna einir inni á klefum sínum, mestan hluta sólarhringsins. Þetta hefur gríðarleg áhrif á geðheilsu fanga og rannsóknir sýnt að einangrun hefur miklar líkamlegar, tilfinningalegar, andlegar og hugrænar afleiðingar. Þrátt fyrir að margir hverjir hafi þeir leikjatölvu til að grípa í eru ekki allir fangar svo lánsamir og hafa því gott sem ekkert við að vera og enginn veit hversu lengi. Afstaða óskar af þessum ástæðum liðsinnis almennings og fyrirtækja, en á mörgum heimilum leynast leikjatölvur sem standa ónotaðar. Þessar leikjatölvur gætu gert kraftaverk þegar kemur að andlegri heilsu fanga um þessar mundir. Ekki skiptir máli hvort leikjatölvurnar séu nýjar eða gamlar, hvort þeim fylgja margir eða fáir leikir. Ef þær virka þá munu þær nýtast í fangelsum landsins. Geti einhver látið leikjatölvu af hendi rakna má hafa samband í síma 789-0717, í netfangið formadur@afstada.is eða í gegnum samfélagsmiðla Afstöðu. Hægt er að koma tölvunum til félagsins en jafnframt stendur til boða að þær verði sóttar. |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
January 2024
|