Frá stjórn Afstöðu: Á aukaaðalfundi Afstöðu, félags fanga á Íslandi, fyrir stuttu var samþykkt að Aðalheiður Ámundadóttir, lögfræðingur myndi taka sæti í stjórn félagsins. Aðalheiður verður fyrsta konan til að taka sæti í stjórn Afstöðu og einnig fyrsti stjórnarmaður félagsins sem ekki er sjálf fangi eða aðstandandi fanga. Afstaða hefur undanfarin ár barist ötulega fyrir auknu vægi betrunar í stað refsistefnu með það að markmiði að fækka endurkomum í fangelsi. Við þessa hagsmunagæslu er mikilvægt að hafa talsmann og erindreka utan fangelsisins enda mikið starf unnið þar. Mikilvægt er að fangar geti komið umkvörtunarefnum og því sem miður fer á framfæri við fjölmiðla og stjórnvöld án þess að þurfa að óttast afleiðingar þess í afplánun sinni, en fangar eru eðli málsins samkvæmt í þeirri aðstöðu að eiga alla sína velferð undir þeim sem fangelsunum stýra og því kann þeim að virðast erfitt að gagnrýna sömu aðila opinberlega. Þátttaka Aðalheiðar, sem sjálfstæðrar stjórnarkonu, í stjórn Afstöðu mun auka trúverðugleika og vigt félagsins og er mikilvægt skref til þess að halda hinu góða starfi áfram. Aðalheiður hefur bæði reynslu og menntun sem vafalaust mun nýtast í starfi félagsins. Hún er lögfræðingur og hefur nýverið látið að störfum sem starfsmaður þingflokks Pírata á Alþingi. Það hefur varla farið fram hjá neinum sem fylgst hafa með umræðum um málefni fangelsa hér á landi að Píratar hafa látið sig málaflokkinn mjög varða. Aðalheiður hefur heimsótt flest fangelsi landsins á undanförnum árum og hefur stjórn Afstöðu átt við hana mjög góð samskipti. Nú hefur samvinnan verið sett í formlegri farveg og mun félagið njóta krafta hennar sem fullgilds stjórnarmanns. Afstaða, félag fanga er forvarnar, fræðslu og hagsmunafélag fanga og annarra áhugamanna um fangelsismál. Markmið félagsins er að stuðla að betrun í afplánun og upplýsa fanga, aðstandendur, almenning og stjórnvöld um framgang í forvarnarstarfi og nýjungum í betrunarmálum. [email protected] |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. [email protected] pistlasafn
May 2024
|