Afstaða lagði nokkra spurningar fyrir stjórnmálaflokkana í tenglsum við kosningarnar sem eru á morgun laugardaginn 25/09/21. Flestir fangar hafa þegar kosið, enn það eru aðstandendur sem hafa verið að spyrja okkur um ráðleggingar og því birtum við svörin hér nú. Félagið vonast til þess að það verði miklar breytingar í málaflokknum eftir þessar kosningar. Þess ber að geta að Sjálfstæðisflokkurinn, Flokkur Fólkins, Miðflokkurinn, Sósíalistaflokkurinn og Frjálslyndi Lýðræðisflokkurinn svöruðu ekki spurningunum og sumir flokkar eins og Framsóknarflokkurinn svaraði aðeins sumum spurningum.
1. Ísland er með refsistefnu eitt Norðurlanda, mun þinn flokkur beita sér í því að taka upp endurhæfingarstefnu eins og önnur Norðurlönd hafa tekið upp utan Ísland? Samfylkingin: Í stefnu Samfylkingarinnar segir: „Samfylkingin vill að yfirvöld komi fram við fanga af virðingu og tryggi örugga, mannúðlega og vel skipulagða afplánun og betrunarvistun. Fangar eiga að fá tækifæri til ábyrgðar, endurreisnar og farsællar endurkomu út í samfélagið. Menntunarúrræði, starfsþjálfun, öflug sálfræðiþjónusta og tækifæri til samfélagsþjónustu í stað refsivistar eru lykilatriði og geta dregið úr líkum á endurteknum afbrotum. Brýnt er að íslenska ríkið dragi lærdóm af fjölmörgum dæmum um að fólk sé frelsissvipt að tilhæfulausu eða haldið í gæsluvarðhaldi lengur en þörf var á." Framsóknarflokkurinn: Félags- og barnamálaráðherra Framsóknarflokksins skipaði stýrihóp árið 2018 um aðstæður fanga eftir afplánun og var sá stýrihópur svo útvíkkaður til þess að móta heildstæða meðferðar- og endurhæfingarstefnu í fangelsismálakerfinu, leggja til nauðsynlegar breytingar á lögum og greina fjárþörf til þess að tryggja öllum föngum einstaklingsbundna meðferðaráætlun, bættan aðgang að menntun og heilbrigðisþjónustu og aukinn stuðning að afplánun lokinni. Skýrslu starfshópsins var skilað nú á dögunum og felur í sér töluvert miklar breytingar í þá veru að taka upp endurhæfingarstefnu. Ekki bara innan fangelsa, heldur allt frá því að dómur fellur og þar til eftir að afplánun lýkur. Það er staðreynd að innan hóps fanga er hlutfall þeirra sem glíma t.a.m. við geðraskanir og/eða fíkniefnaneyslu, o.fl. hærra en meðal almennings alls. Í ljósi þess er augljóst að við sem samfélag getum bæði gert betur í því að aðstoða fólk fyrr í ferlinu, t.d. í æsku, og beitt þannig forvörnum sem og að okkur ber að tryggja að endurkomutíðni fanga í fangelsi lækki. Það gerum við með endurhæfingarstefnu. Það er samfélagslega ábyrgt og fjárhagslega arðbært. Framsókn mun beita sér fyrir því að halda áfram þeirri vinnu sem félags- og barnamálaráðherra flokksins hefur hafið og þar með fyrir endurhæfingarstefnu. Vinstri Græn: Já. Vinstri græn telja að leggja þarf áherslu á betrunarvist í stað refsivistar í fangelsujm landsins, og efla þar geðheilbrigðisþjónustu til muna. Efla þarf samfélagsþjónustu í stað fangelsisrefsingar. Tryggja þarf möguleika fanga til að viðhalda tengslum við fjölskyldur sínar á meðan á afplánum stendur, ekki síst í þágu barna þeirra. VG vill einnig minnka biðlista eftir afplánun svo að fólk sé ekki að hefja afplánun mörgum árum eftir að brot eru framin. Píratar: Já 2. Mun þinn flokkur beita sér fyrir því að fangar geti stundað raunverulegt nám og verknám? Samfylkingin: Já, en í stefnu Samfylkingarinnar kemur fram „Menntunarúrræði, starfsþjálfun, öflug sálfræðiþjónusta og tækifæri til samfélagsþjónustu í stað refsivistar eru lykilatriði og geta dregið úr líkum á endurteknum afbrotum.” Og mun Samfylkingin beita sér í því að þetta verði raunverulegur valkostur. Framsóknarflokkurinn: Framsókn mun beita sér fyrir aukningu á menntun og virkni fyrir fanga í formi stóraukinnar námsráðgjafar og sérkennsluúrræða, aukinnar fullorðinsfræðslu og námskeiða í verkmenntun. Huga þarf í tengslum við þetta að betra aðgengi fanga að tölvum, interneti og þjálfun í tölvulæsi. Samstarf við Vinnumálastofnun er svo vettvangur fyrir aðstoð við fanga þegar þeir koma úr fangelsum inn á vinnumarkaðinn. Vinstri Græn: Já, tryggja þarf réttindi og góðan aðbúnað fanga sem og að bjóða þeim aðgang að menntun og viðunandi meðferðar- og heilbrigðisþjónustu. Píratar: Já 3. Mun þinn flokkur koma á þannig kerfi að allir fangar eigi jafnan rétt á öllum úrræðum burtséð frá brotaflokki? Samfylkingin: Þaði samræmist ekki stefnu Samfylkingarinnar að mismuna föngum þegar það kemur aðgengi að úrræðum. Vinstri Græn: Já. Það er stefna VG að öll hafi rétt á aðgang að þeirri þjónustu sem þau þurfa á að halda á hverjum tíma. Þar eru fangar meðtaldir. Píratar: Píratar vilja að fangar hafi aðgang að fjölbreyttum úrræðum til endurhæfingar. Píratar trúa sömuleiðis á að jafnræði í aðgengi að úrræðum eigi að vera leiðarljósið, en útiloka þó ekki að einstaka undantekningar kunni að vera viðeigandi. 4. Mun þinn flokkur koma á samstarfi við sveitarfélögin þannig að vel sé tekið á móti öllum föngum aftur út í samfélagið þannig að menn leiðist ekki aftur út í glæpi. Samfylkingin: Já, er það lykilhlutverk að fangar fái tækifæri til ábyrgðar, endurreisnar og farsællar endurkomu út í samfélagið og það gerist ekki án aðkomu sveitarfélaga um allt land. Vinstri Græn: Já, það er mjög þess virði að skoða öll úrræði sem geta bætt aðstöðu fanga sem hafa lokið afplánun. Stór liður í því er úrræði á meðan afplánun stendur, til að mynda með möguleika á auknum fjölskyldutengslum, menntum og geðheilbrigðisþjónustu til að tryggja betri möguleika á aðlögun að samfélaginu að nýju. Þá stendur einnig í stefnu VG að móta þurfi markvissa stefnu í áfengis-, tóbaks- og vímuvarnarmálum. Fyrsta skrefið er að styrkja velferðarkerfið og efla forvarnarstarf, sem byggist á sannreyndum aðferðum og hefur skilað árangri. Tryggja þarf fíklum viðunandi meðferðarúrræði með samvinnu dóms-, félags- og heilbrigðiskerfis en stærsti hluti fanga á við áfengis – og vímuefnavanda að stríða sem hefur bersýnilega áhrif á aðlögun þegar afplánun lýkur. Heilbrigðiskerfið á að þjóna öllum óháð efnahag, aðstæðum og búsetu og tryggja þarf að notendur heilbrigðisþjónustunnar komi að skipulagi hennar. Brýnt er að lækka heilbrigðisútgjöld sem hlutfall af tekjum heimila, afnema sjúklingagjöld og lækka lyfjakostnað sjúklinga. Tryggja þarf réttindi geðsjúkra, vinna gegn fordómum um geðsjúkdóma og hrinda í framkvæmd langþráðri stefnumörkun í geðheilbrigðismálum. Píratar: Píratar vilja færa sig úr refsingarstefnu og yfir í endurhæfingarstefnu. Sú stefnubreyting felur í sér víðtækt samráð og samstarf við ótal aðila, þar á meðal sveitarfélögin. 5. Hvernig ætlar þinn flokkur að styðja við bakið á Afstöðu, félagi fanga og þeirra aðstandenda, en félagið sinnti yfir 2200 málum á árinu 2020? Samfylkingin: Á komandi kjörtímabili mun fara innra stefnumótunarstarf flokksins þar sem við munum bjóða Afstöðu að koma með sína innsýn og reynslu inn í stefnumótunarvinnu í formi fræðslufunda og þannig auka skilning félagsmanna og kjörinna fulltrúa á málaflokknum. Framsóknarflokkurinn: Félags- og barnamálaráðherra Framsóknarflokksins hefur styrkt starf Afstöðu á líðandi kjörtímabili og Framsókn stefnir að því að halda stuðningi áfram verði flokkurinn í ríkisstjórn. Vinstri Græn: Það er mikilvægt að styðja fanga í því að tala fyrir sínum málum og sinna hagsmunagæslu. Fangar eru, í því kerfi sem nú er á Íslandi, jaðarsettur hópur. Það þarf að taka mið af því í allri ákvaraðantöku tengdum málaflokknum. Píratar: Píratar trúa á virkt samráð við þau sem málin varða, það er einfaldlega veigamikill þáttur í grunnstefnu flokksins sem allar ákvarðanir Pírata byggja á. Píratar hlakka því til við samstarfsins við Afstöðu um málefni fanga á næsta kjörtímabili og vona að samtalið verði virkt, föngum til hagsbóta. 6. Mun þinn flokkur sjá til þess að Afstaða fái að koma að málefnum sem snerta fanga í nefndum og samráði? Samfylkingin: Samfylkingin mun sjá til þess að opið samráð verður við hagsmunaöfl, meðal annars Afstöðu, komi til þess á kjörtímabilinu að fari verði í stefnumótun á sviði fangelsismála, sem er mjög brýnt. Vinstri Græn: VG telur það heillavænlegast í allri ákvarðanatöku að leita samráðs hjá þeim sem ákvarðanir kunna að hafa áhrif á. Fyrir utan samráðsgátt stjórnvalda, þar sem allir geta komið sinni skoðun á framfæri við stjórnvöld, hefur VG leitast við að eiga öflugt samtal við hagsmunasamtök í allri ákvarðanatöku. Píratar: Já. Grunnstefna Pírata er skýr: Píratar telja að allir hafi rétt til að koma að ákvarðanatöku um málefni sem varða þá. |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
January 2024
|