![]() Undanfarnar vikur hefur Afstaða sent tölvupósta á ýmsa opinbera aðila sem aðila í þriðja geiranum sem sinna velferða og mannúðarmálum eftirfarandi texta hér að neðan. Mjög vel hefur verið tekið í okkar erindi og virðist sem aðilar séu að átta sig á mikilvægi þess að útiloka ekki fólk frá atvinnu þrátt fyrir að vera á sakaskrá. Afstaða mun hér eftir senda á alla þá aðila sem við sjáum að óski aðeins eftir fólki með hreint sakavottorð og jafnvel bera slík mál fyrir dóm ef ekki verður brugðist við. Þess má geta að líklegt er að eitt slíkt mál fari fyrir dómstóla strax í byrjun árs 2022. Afstaða hefur einnig sent Félagsmálaráðuneytinu svipað erindi þegar kemur að bakvarðaskráningu í velferðarþjónustu en ekki þarf hreint sakavottorð í þau störf samkv. lögum en okkur hefur ekki borist svar ennþá. Afstaða hvetur þó Félagsmálaráðuneytið nú í ljósi neyðarástands í heilbrigðismálum að taka þetta ákvæði út við skráningu fólks í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar og meta fólk, störf og brotið. Tölvupóstur sýnishorn: Í auglýsingu um laust starf ........................ hjá............................ er það gert að skilyrði að umsækjandi hafi hreint sakavottorð. Við teljum það ekki samræmast 65. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. 14. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu og mannréttindasjónarmiðum almennt að útiloka með þessu hóp þjóðfélagsins sem getur verið að öðru leyti hæfur til starfans. Einnig má benda á lög um atvinnufrelsi manna. Þrátt fyrir að vissar tegundir refsidóma séu þess eðlis að ekki sé æskilegt að dómþoli starfi innan ....................................... eru þeir þó margskonar. Þannig er ólíklegt að sakavottorð hafi sjálfkrafa þær afleiðingar að dregið sé úr trú almennings og skjólstæðinga á starfseminni. Þá bendum við á lög um félagsþjónustu, þar sem þeir sem hafa verið dæmdir fyrir ákveðin brot eru útilokaðir frá ákveðnum störfum en meta skuli aðra og því gengur ekki að hafa ákveðna reglu heilt yfir fyrir alla. Því viljum við beina því til ykkar að það verði háð mati hverju sinni hvernig brot sé og þá hvort það sé þess eðlis að ekki sé hægt að ráða dómþola til starfa. Við gerum ekki aðrar athugasemdir við auglýsinguna núna en vonum að í framtíðinni verði þetta skilyrði orðað öðruvísi eins og t.d: hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur, en það er svipað og sum sveitarfélög auglýsa. Aðalmálið er þó að fara eftir því ákvæði að það sé metið í hvert skipti. Kærar þakkir og bestu kveðjur Öllum er ljóst að fangar eru afgangsstærð í íslensku samfélagi en sama skapi bitnar sú staðreynd harkalega á saklausum börnum þeirra sem afplána dóma sína. Nú ríkir neyðarástand í fangelsum landsins og því miður er útlit fyrir að svo verði áfram.
Til þess að halda mannlegri reisn sinni fá fangar greidda dagpeninga og fæðisfé sem nýtast á til kaupa á mat og brýnustu nauðsynjum. Upphæð dagpeninga hefur haldist sú sama í fimmtán ár og nemur 3.100 krónum á viku. Og engin ástæða hefur þótt til að hækka fæðisféð heldur enda vita allir að verðlag á Íslandi hefur haldist svipað frá 2006. Ekki satt? Nei. Sannleikurinn er sá að allar vörur hafa hækkað gríðarlega og nú er svo komið að fangar hafa hreinlega ekki efni á fæði, brýnustu hreinlætisvörum og hvað þá öðru smáræði sem þarf að kaupa, eins og jólagjafir handa börnum sí nú um. Öllum hækkunum hefur verið komið fyrir á herðum fanga og var byrðin þar næg fyrir. Fangar fá ekki desemberuppbót og langflestir þeirra sem afplána á Litla-Hrauni eru atvinnulausir og fá þar af leiðandi enga auka þóknun umfram dagpeninga og fæðisfé. Atvinnuleysið er ekki þeim að kenna. Það er enga vinnu að hafa. Þessir menn geta ekki glatt börn sín með smáræði um jólin. Það ætti að vera forgangsverkefni nýs dómsmálaráðherra að fara í þetta mál og bjarga föngum um jólabónus ef ekki nema til þess að gleðja nokkur ung hjörtu sem fá þá gjöf frá fjarverandi foreldri. Við hjá Afstöðu viljum styrkja fjölskyldubönd, við viljum betra fólk út úr fangelsunum. Við skorum á dómsmálaráðherra að beita sér í þágu betrunar. |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
July 2023
|