Í dag birtist frétt þess efnis að hópur sem kallar sig Aktivistar gegn nauðgunarmenningu mómæli komu boxarans Mikes Tyson til landsins, en hann er að koma fram á sýningu sinni The Undisputed Truth. Í yfirlýsingu frá hópnum sem birt var á visir.is kemur meðal annars fram að þeim finnist undarlegt að maður með nauðgunardóm á bakinu og ríkulega forsögu um ofbeldi í garð kvenna skuli upphafinn með þessum hætti og boðinn velkominn til landsins.
Sýningin sem Mike Tyson heldur er eins manns sýning og fjallar um líf hans, erfiða æsku, brotna fjölskyldu; segir frá einstaklingi sem flosnaði upp úr skóla, leiddist út í glæpi og fíkniefnaneyslu – og endaði í fangelsi. Þessi lýsing á við ýmsa sem hafa setið, eða sitja nú, í íslenskum fangelsum. En Tyson náði að breyta lífi sínu og um það fjallar sýningin: að segja frá ferli þar sem áföll, mistök og og sorg kemur m.a. við sögu. Með því að segja sögu sína vill hann aðstoða aðra sem hugsanlega er á sömu braut og hann var á, áður en hann snéri við blaðinu. Það er sorglegt að viðhorf, um að einstaklingur skuli aldrei hljóta uppreist æru, séu enn við lýði á Íslandi. Hvernig getum við ætlast til þess að einstaklingur sem hefur setið af sér dóm geti breyst og betrast ef að samfélag manna mun aldrei taka hann í sátt að nýju – ALDREI. Betrun loks lögfest á Íslandi? Drög hafa verið lögð að breyttu kerfi á Íslandi sem mun byggjast á betrun, í stað refsihyggju. Vonir standa til að slíkt frumvarp verði innleitt í lög á næsta löggjafarþingi. Enn virðist þó refsihyggjan vera ríkjandi hjá fámennum hópi hér á landi, þrátt fyrir að rannsóknir og reynsla á Norðurlöndunum sýni að sú stefna sem þar hefur verið innleidd, sem byggir á betrun þar sem lögð er áhersla á menntun og aðstoð að afplánun lokinni, hefur skilað gífurlegum árangri: færri endurkomum í fangelsi og virkri jákvæðri þátttöku í samfélaginu að lokinni afplánun. Það er því með hreinum ólíkindum að verða vitni af forneskjulegum viðhorfum þar sem hópur manna í samfélagi vill gera aðra hornreka. Það er nefnilega ekki nóg að líta bara svo á að tilgangur fangavistar eigi að vera betrun ef samfélagið er síðan ekki tilbúið til að samþykkja einstaklinginn að afplánun lokinni. Við eigum því að fagna þegar fólk eins og Mike Tyson kemur fram með það að markmiði að nýta reynslu sína, öðrum víti til varnaðar, samfélaginu öllu í hag. Að lokum hvet ég alla þá sem áhuga hafa á að hlýða á breyttan mann segja frá torfarinni sögu sinni að fara á sýningu Tyson – jafnframt sem ég býð til uppbyggilegrar og málefnalegrar umræðu um betrunarstefnuna á facebook-síðu Afstöðu. formadur@afstada.is |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
January 2024
|