Afstada.is
  • Forsíða
  • Um felagid
  • Blogg
  • Rannsoknir
  • Stjornsysla
  • Stefnumotun

ENDURKOMUTÍÐNIN HÆST HJÁ 6 - 8 ÁRA

1/8/2017

Comments

 
Picture
Endurkomutíðni í fangelsi hefur verið Afstöðu hugleikin um margra ára skeið. Fyrst og fremst vegna þess að tilfinning félagsins stangast á við fullyrðingar Fangelsismálastofnunar og ráðamanna en einnig vegna þess að engar rannsóknir hafa verið gerðar á endurkomutíðni í íslensk fangelsi. Og það er tölfræði sem á að vera aðgengileg. Það er eitt helsta mælitæki í fangelsismálum, þannig sjáum við hvort starfið í fangelsum landsins skili árangri.

Þau gögn sem ávallt eru dregin upp á yfirborðið þegar spurt er um endurkomutíðni í íslenskum fangelsum er könnun Norðmannsins Ragnars Kristoffersen sem starfar við norska fangavarðaskólann. Hann fékk sendar upplýsingar frá Noregi, Íslandi, Finnlandi, Danmörku og Svíþjóð um það hvernig staðan var árið 2005 og kom skýrsla hans út árið 2010. Engin ástæða er til að draga í efa að það sem þar kemur fram sé satt og rétt.

Á dögunum var nýr vefur Stjórnarráðsins kynntur og meðal þess sem finna má á vefnum er fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar en hún felur í sér útlistun á því hvernig markmiðum fjármálastefnu verði náð. Í kaflanum um almanna- og réttaröryggi er eftirfarandi texti um endurkomutíðni:

„Árið 2010 voru birtar niðurstöður samnorrænnar samanburðarrannsóknar á því hvernig föngum vegnar að lokinni afplánun. Þar kom fram að Ísland er með næstlægstu endur­komu­tíðni á eftir Noregi. Endur­komu­tíðni er reiknuð með tvennum hætti. Annars vegar sem hlutfall þeirra sem fá nýjan dóm innan tilskilins tíma frá lokum afplánunar, upphafi samfélagsþjónustu, eftirlits vegna skilorðsbundins dóms eða rafræns eftirlits og hins vegar sem hlutfall fanga sem hafa áður afplánað refsingu í fangelsi. Ef skoðaður er hópurinn sem afplánar refsingu með samfélagsþjónustu eða sambærilegum úrræðum er Ísland með bestu útkomuna. Rannsóknin leiddi m.a. í ljós að þeir sem eru dæmdir fyrir kynferðisbrot, ofbeldis­brot og fíkniefnabrot koma mun sjaldnar aftur heldur en þeir sem dæmdir hafa verið fyrir þjófnað og umferðarlagabrot. Þá kemur fram að þeir sem koma aftur koma yfirleitt ekki inn aftur fyrir sama afbrot.“ (Leturbreytingar eru Afstöðu.)

Eftir að hafa rýnt í skýrsluna er ljóst að setja má umræddan texta fram með eftirfarandi hætti og hann er alveg jafn sannleikanum samkvæmur.

„Árið 2010 voru birtar niðurstöður samnorrænnar samantektar á því hvernig föngum vegnar að lokinni afplánun. Þar kom fram að Ísland er með hæstu endurkomutíðni í hópi 18-20 ára fanga. Endurkomutíðni er reiknuð með tvennum hætti. Annars vegar sem hlutfall þeirra sem fá nýjan dóm innan tilskilins tíma frá lokum afplánunar, upphafi samfélagsþjónustu, eftirlits vegna skilorðsbundins dóms eða rafræns eftirlits og hins vegar sem hlutfall fanga sem hafa áður afplánað refsingu í fangelsi. Ef skoðaður er hópurinn sem afplánar refsingu með samfélagsþjónustu eða sambærilegum úrræðum stendur Ísland sig verst í hópi 18-20 ára og 61 árs og eldri. Samantektin leiddi m.a. í ljós að þeir sem eru dæmdir fyrir rán, ofbeldisbrot og umferðarlagabrot koma mun oftar aftur heldur en þeir sem dæmdir hafa verið fyrir fíkniefnalagabrot og kynferðisbrot. Þá kemur fram að þeir sem koma aftur, á Norðurlöndunum öllum, koma yfirleitt ekki inn aftur fyrir sama brot.“

Með þessu vill Afstaða benda á tvennt. Annars vegar að skýrslan frá 2010 dregur ekki upp neina glansmynd af ástandinu í fangelsiskerfinu íslenska og að hafa verður í huga, ef ráðherra ætlar sér að alhæfa út frá skýrslunni, að hópurinn sem hún segir standa verst var 6-8 ára þegar gögnunum var safnað.

formadur@afstada.is
Comments
    Picture

    höfundar

    Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga,  um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is

    pistlasafn

    April 2020
    March 2020
    December 2019
    December 2018
    October 2018
    May 2018
    April 2018
    March 2018
    February 2018
    October 2017
    September 2017
    August 2017
    July 2017
    April 2017
    December 2016
    November 2016
    October 2016
    August 2016
    July 2016
    May 2016
    April 2016
    March 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015
    November 2015
    September 2015
    August 2015
    July 2015
    March 2015
    February 2015
    January 2015
    December 2014
    November 2014

    RSS Feed

AFSTAÐA Icelandic advocacy group for better prison policies and betterment.
© COPYRIGHT AFSTAÐA 2020
  • Forsíða
  • Um felagid
  • Blogg
  • Rannsoknir
  • Stjornsysla
  • Stefnumotun