Þetta var meðal þess sem stóð á miðunum sem héngu á “Englatré” því sem fangapresturinn, sr. Hreinn S. Háonarson, kom fyrir í anddyri Grensáskirkju á fyrsta í aðventu - nú 12 árið í röð.
“Á jólatré þetta eru hengd lítil spjöld í engilsmynd og tréð því kallað Englatréð. Á spjaldi þessu stendur leyninafn barnsins og aldur. Safnaðarfólk hefur síðan verið hvatt til þess að taka eitt spjald og finna litla gjöf handa viðkomandi barni og leggja hana síðan við tréð. Fangaprestur setur síðan nýjan jólamerkimiða á hvern pakka eins og væri hann hver annar jólasveinn (!) því hann veit hið rétta nafn barnsins, skrifar það á miðann og setur á gjöfina með kveðju frá vini eða vinkonu, eða jólasveininum. Englaspjöldin hafa alltaf runnið út því fjölmargir hafa viljað leggja málinu lið. Fjöldi spjalda skiptir tugum og stundum hefur þurft að hafa tvö spjöld á barn til að koma til móts við hinn mikla áhuga og velvilja safnaðarins” sagði m.a. í pistil sr. Hreins um þetta efni á heimasíðu hans wwwfangelsismal.is http://www.fangelsismal.is/2018/12/02/faein-ord-a-adventu-um-born-fanga-og-englatred/ Já, velviljinn er mikill gagnvart þeim sem minnst mega sín – þ.e. börnum þeirra sem dvelja í fangelsum um jólin. Því það eru í reynd þau sem þjást vitandi af foreldri sínu sem er aðskilið frá fjölskyldu og vinum á þeim tíma ársins sem fólk kemur saman til að treysta böndin. Vanlíðanin hjá þeim sem í fangelsi eru snýr enda fyrst og fremst að því að hugsa til barnanna, fjölskyldu og vina – sem hafa áhyggjur af hinum frelsissvipta. Afstaða vill þakka öllum sem sýna föngum, börnum þeirra og öðrum vandamönnum hlýhug og skilning, nú þegar jólin ganga í garð. Afstaða óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla. [email protected] |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. [email protected] pistlasafn
May 2024
|