Kosningar fara fram í fangelsum landsins á næstu dögum. Afstaða hvetur stjórnmálaflokka og frambjóðendur til að kynna stefnu sína í fangelsismálum og vekur athygli á því að mögulegt er að heimsækja fangelsi landsins og hitta fanga, eftir því sem fangar sjálfir vilja.
Afstaða kallar sérstaklega eftir sýn stjórnmálaflokka á heildarnálgun í betrun, mennta- og atvinnumál í fangelsum, heilbrigðisþjónustu fanga, þar á meðal geðheilbrigðisþjónustu og úrræði fyrir fanga eftir afplánun. Af því tilefni hefur Afstaða stjórnmálaflokkum fyrirspurn varðandi stefnu þeirra í málaflokknum. Svör flokkanna við fyrirspurn Afstöðu verða birt á heimasíðu félagsins seinni partinn á morgun, miðvikudag. Óski frambjóðendur eftir samtali eða fundi með talsmönnum félagsins má hafa samband við undirrituð. Virðingarfyllst, fyrir hönd Afstöðu, Guðmundur Ingi Þóroddsson, formadur@afstada.is Aðalheiður Ámundadóttir, alla@afstada.is |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
January 2024
|