Knut Storberget var dómsmálaráðherra Noregs 2005-2011, en áður hafði hann starfað sem lögmaður/verjandi og heimsótti í sinni ráðherratíð hvert og eitt fangelsi í Noregi. Í ráðherratíð sinni lagði hann m.a. fram s.k. hvítbók (Stortingsmelding 37 - straff som virker) sem gæti útlagst á íslensku 'dómar með tilgang'. Þar eru lagðar fram fjölmargar tillögur sem snéru m.a. að samvinnu ríkis, sveitarfélaga og samtaka, eins og Rauða krossins og Hjálpræðishersins, til að tryggja farsæla endurkomu dómþola út í samfélagið að nýju svo fækka mætti endurkomum í fangelsi.
SJÁ EINNIG: Frelsi. Hvað svo? Síðan þá hefur nám starfsmanna fangelsa verið fært á háskólastig og norsk hugmyndafræði er orðin að 'útflutningsvöru' þar sem Bastøy-módelið er haft að fyrirmynd. Á föstudaginn n.k. mun Knut Storberget halda fyrirlestur í Norræna húsinu sem ber yfirskriftina: 'Thinking new; punishment that works' Norræna húsinu, föstudaginn, 29. janúar kl. 13:00-15:00 ritstjorn@afstada.is |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
January 2024
|