Í viðtali sem birtist í Morgunblaðinu í dag við Pál Winkel, forstjóra fangelsismálastofnunar kemur fram að ekki hafi fylgt fjármagn með nýju refsistefnulögunum sem samþykkt voru á Alþingi í síðasta mánuði. Telur Páll að einhver misskilningur hafi ráðið ferð hjá þinginu þegar fjármunir voru ekki settir í verkefni sem kveðið var á um í nýju lögunum. Í aðdraganda lagasetningarinnar kom Afstaða á framfæri athugasemdum, bæði við innanríkisráðuneytið og allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, um að auka þyrfti úrræði til afplánunar utan fangelsa. Ef aukin áhersla yrði lögð á opin úrræði, eins vistun á áfangaheimilum, þyrfti að setja fjármagn í slíkt – sérstaklega á landsbyggðinni. Það lá fyrir þegar fjárlög voru samþykkt að það yrði ekki gert. Þá staðfestir Páll í raun það sem fram kom í grein minni eftir að frumvarpið hafði verið samþykkt á Alþingi, að lagasetningin væri meingölluð enda hefði meiri hluti allsherjarnefndar í raun hunsað algjörlega öll sérfræðiálit við gerð frumvarpsins. Alrangt hjá Ríkisendurskoðun! Það kom því verulega á óvart þegar ríkisendurskoðandi kynnti í síðustu viku skýrslu sína til Alþingis, þar sem fram kom að ekki þætti þörf á að árétta ábendingar úr eftirfylgniskýrslunni Skipulag og úrræði í fangelsismálum frá árinu 2013 - en þar hafði ríkisendurskoðandi lagt áherslu á, og gert athugasemdir við, að nauðsynlegt væri að tryggt væri að fjármagn fylgdi lögbundnum verkefnum fangelsismálastofnunar. Auðvitað er alrangt hjá Ríkisendurskoðun að ekki sé lengur nauðsyn til að gera athugasemdir við að það skorti á að fjármagn fylgi verkefnum sem bundin eru í lög. Það kemur enda fram í viðtalinu við forstjóra fangelsismálastofnunar í Morgunblaðinu að töluvert fjármagn vanti til þess að hægt sé að sinna lögbundnum verkefnum stofnunarinnar og auka úrræði utan fangelsa. Eina úrræðið utan fangelsa, annað en samfélagsþjónusta og rafrænt eftirlit, er vistun á áfangaheimili - og plássum þar hefur ekki fjölgað neitt síðan 1985. Það hefur komið mér verulega á óvart hversu erfitt hefur reynst að ná eyrum innanríkisráðherra, og stjórnvalda almennt, um þennan málaflokk. Eitt veit ég þó; við höfðum tækifæri til þess að gera frábært frumvarp um fullnustu refsinga - með betrun að leiðarljósi, en ákveðið var að velja ekki þá leið heldur setja gömlu refsistefnuna einungis í nýjar umbúðir. formadur@afstada.is |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
January 2024
|