Á landsfundi Samfylkingarinnar hefur verið ályktað um fangelsismál, þar segir: Áhersla á betrunarvist Leggja á áherslu betrunarvist fanga í stað refsivistar, með því að m.a. efla menntun fanga og draga þannig úr líkum á endurteknum afbrotum. Mikilvægt er að hlúa að aðstandendum fanga en nú er hvorki fyrir hendi fagleg aðstoð við aðstandendur né aðstaða fyrir þá í fangelsunum. Geðheilbrigði fanga Skapa þarf úrræði innan fangelsis- eða heilbrigðiskerfisins vegna vistunar geðsjúkra fanga. Setja á fram löggjöf um sáttamiðlun sem jafnan valkost til úrlausnar ágreiningi í einkamálum og viðskiptadeilum samhliða dómstólum og úrskurðarnefndum á vegum stjórnvalda. Afglæpavæðing fíkniefna Unnið skal að afglæpavæðingu fíkniefna – refsirammi vímulöggjafarinnar er of strangur og ekki til þess fallinn að aðstoða fólk sem stríðir við vímuefnavanda. Varsla neysluskammta fíkniefna ætti þar af leiðandi ekki að vera refsiverð og auknu fjármagni ætti að veita í forvarnir og fræðslu í stað löggæslu. Sjá á heimasíðu Samfylkingarinnar |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
January 2024
|