Árið byrjaði fallega hjá okkur. Við héldum upp á 10 ára afmæli Afstöðu og voru veisluhöld í öllum fangelsum landsins. Fangelsin buðu upp á veitingar og Afstaða veitti nokkrum völdum aðilum viðurkenningar fyrir störf í þágu fanga.
Á áratugsafmæli Afstöðu má svo sannarlega segja að fangelsismálin hafi verið í brennidepli í þjóðfélagsumræðunni. Mikil vitundarvakning hefur orðið um hvort rétt sá að taka upp aðrar aðferðir en refsingu, líkt og hinar Norðurlandaþjóðirnar hafa gert með nálgun á betrun. Í desember átti Afstaða fund með allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis um nýtt frumvarp um fullnustu refsinga, sem innanríkisráðherra hefur lagt fram. Það er ekkert leyndarmál að við urðum fyrir mjög miklum vonbrigðum með frumvarpið og sjáum strax að ekki er vilji hjá ráðherra að feta í sömu spor og nágrannaþjóðirnar til þess að fækka brotarþolum á Íslandi heldur þvert á móti. Það kom virkilega á óvart enda bundum við miklar vonir við að nýr ráðherra væri tilbúinn til að feta nýjar slóðir. Það hlýtur að vera markmiðið til framtíðar að fækka brotarþolum og lækka kostnað og því verður að hugsa þennan málaflokk til langtíma en ekki aðeins eitt kjörtímabil í einu. Seint á þessu ári var stofnuð enn ein nefndin á vegum ráðuneytanna um geðheilbrigðismál fanga, sem á að koma með hugmyndir um breytingar. Enginn sérfræðingur er í nefndinni né fulltrúi notenda. Við reyndar könnumst vel við slíkt fyrirkomulag enda var ekki haft neitt samráð um nýja frumvarpið um fullnustu refsinga, hvorki við okkur fanga né þá fangaverði sem hafa starfað í þeim löndum þar sem markmiðið er betrun. SJÁ EINNIG: Grunn umræða um geðheilbrigði fanga. Þetta árið var í fyrsta heila árið sem Afstaða hélt úti heimasíðu þar sem reglulega birtast fréttir af málefnum fanga, sem er viðbót við facebook-síðu félagsins. Síðurnar hafa verið mjög svo vinsælar og jafnvel lesnar í tugþúsunda tali. Máttur samfélgasmiðla er mikill og vart viðhorfsbreytingar til málaflokksins eftir að við byrjuðum að fræða almenning um fangelsismál. Við munum halda því áfram með að markmiði að þekking muni leiða til jákvæðra kerfisbreytinga. Afstaða hefur aldrei áður átt eins marga fundi og í ár. Ótrúlegur fjöldi þingmanna kom á fund og einnig áttum við nokkra fundi með hinum ýmsu þingnefndum. Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og sveitarstjórnarfulltrúar áttu einnig fundi með okkur á árinu sem er að líða. Þá mætti formaður Lögreglustjórafélagsins til okkar ásamt lögreglustjóranum á Höfuðborgarsvæðinu, þar sem rætt var um nýjar leiðir til að aðstoða einstaklinga af glæpabrautinni. Borgarstjórinn í Reykjavík ræddi við okkur og það gerðu einnig fulltrúar ýmsa félagasamtaka, eins og Rauða kross Íslands, Verndar og Hjálpræðishersins. Komið var á samstarfi við ýmis félög varðandi skaðaminnkun í fangelsum, fleiri atvinnutækifæra fyrir fanga og auðveldari aðgengi að námi fyrir fanga í fjarnámi. Undnfarið höfum við verið í samskiptum við Lögmannafélag Íslands, en við teljum mikilvægt að breytingar verði gerðar til að bakvaktarlisti lögmanna virki sem skildi, því í dag er óeðlilega staðið að úthlutun verjenda sem lögregla hefur milligöngu um í lang flestum tilfellum. Afstaða hefur kvartað yfir þessu til nánast allra sem að málinu koma, en samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum fengið þá virðist ekki vera mikill áhugi til að breyta þessu ferli. Afstaða mun kynna nýja áætlun til þess að veita grunðum betra aðgengi að góðum lögmönnum á nýju ári ef, ekki verða gerðar breytingar á næstu vikum. Alþingi samþykkti einróma að fela ríkisstjórninni að fullgilda svo kallaðan OPCAT samning, sem er viðauki við sáttmála Sameinuðu þjóðanna um varnir gegn pyndingum en hann hefur m.a. verið innleiddur af öllum Norðurlöndunum. Píratar lögðu málið tvívegis fram á Alþingi og eiga heiður skilinn fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga máli. Enn á þó eftir að útfæra hið innlenda eftirlit með stofnunum sem vista frelsissvipta, en við höfum góðar fyrirmyndir frá Norðurlöndunum auk þess sem erlent eftirlit verður með innlenda eftirlitinu. Barnakoti, sem er sérstök aðstaða fyrir börn fanga á Litla-Hrauni, var lokað um helgar seinnipart þessa árs og mótmæltum við því harðlega. Það voru því gleðifréttir þegar við fréttum að Alþingi hefði sett sérstaka fjárveitingu í að tryggja opnun Barnakots um helgar. Á árinu kom oft og iðulega í hlut Afstöðu að aðstoða fanga og aðstandendur, þrátt fyrir að lög geri ráð fyrir að Afstaða skipti sér ekki af einstökum málum. Þegar þessir aðilar geta ekki snúið sér neitt annað höfum við, og munum halda áfram, aðstoðað á allan þann hátt sem við höfum getu til. Upp komu dæmi þar sem frelsissviptir einstaklingar voru skildir eftir á götunni og yfirvöld bentu síðan hver á annan til að firra sig ábyrgð. Í slíkum tilvikum er hreinlega ekki hægt að líta undan. Afstaða lætur þess yfirleitt aldrei ónefnt að við stöndum fyrir betrun og okkar markmið er að fangelsiskerfið fari þær leiðir. Lykillinn að betrun er þrenns konar: menntun, starfsþjálfun og bætt tengls við fjölskyldu. Þetta eru þau atriði sem við höfum lagt áherslu á og vonum að á nýju ári verði enn frekar bættir möguleikar til að auka aðgengi að öllu námi, sérstaklega verknámi. Þá þarf að taka sérstaklega til skoðunar fjölskyldutengls og hvernig hægt er að auka samskipti fanga við fjölskyldu hans. Mikill fjöldi hefur aðstoðað okkur í baráttunni í ár, og þeim ber að þakka innilega fyrir. Á nýju ári ætlum við í Afstöðu að halda áfram að þrýsta á að komið verði á betrun í fangelsunum, en megin verkefni okkar verður að þessu sinni að fá sveitarfélög landsins til að axla ábyrgð á farsælli endurkomu dómþola út í samfélagið að nýju. Því miður eru ótal dæmi um að föngum sem sleppt er út, séu komnir aftur inn í fangelsin innan nokkura vikna eða mánaða - og úr þessu er hægt að draga verulega ef sveitarfélögin koma að þessari vinnu eins og sveitarfélögin á hinum Norðurlöndunum hafa gert með ótvíræðum árangri. Ekki er nóg að geyma einstakling í ákveðinn tíma og ætlast síðan til þess að hann verði betri þegar hann losnar. Það þarf að gefa honum tækifæri til að setja sér markmið og vinna með honum markvisst í að ná þessum markmiðum. Því spyrjum við á nýju ári: FRELSI. HVAÐ SVO? Guðmundur Ingi Þóroddsson formadur@afstada.is |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
January 2024
|