Upp komst um fjarveru piltanna, sem báðir eru um tvítugt, innan klukkustundar eftir að þeir yfirgáfu svæðið. Má þakka það náin samskipti starfsmanna og vistmanna. Báðir höfðu piltarnir verið stutt á Kvíabryggju og eru meðal yngstu vistmanna staðarins.
Atburðir sem þessir munu alltaf varpa skugga á þær aðstæður sem vistmenn búa við en hafa skal i huga að eftir voru 21 vistmaður sem yfirgáfu ekki svæðið. Sambærilegt atvik hefur enda ekki komið upp á Kvíabryggju á þriðja áratug og því ekki hægt að draga þá ályktun að þörf sé á breyttu verklagi. Fangelsisvist er alltaf íþyngjandi og getur oft á tíðum reynst ungu fólki mikil raun. Ekki má heldur gleyma að umræddir piltar eiga aðstandendur sem líða fyrir atburðinn og þá óvissu sem fylgir því að vita ekki í hvaða aðstæður þeir ef til vill hafa komið sér í. Atvikið endurspeglar þó fyrst og fremst skort á úrræðum innan fangelsiskerfisins til að aðstoða þá sem á því þurfa að halda. Ekki er nóg að loka menn inni sem eiga við vandamál, eins og fíkn, að stríða heldur ber að veita þeim aðstoð sem er því miður af skornum skammti í fangelsiskerfinu í dag. Stjórn Afstöðufélagsins Kvíabryggju |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
July 2023
|