„Viltu að hringt verði í einhvern sérstakan eða að við veljum?“ Þetta er spurning sem borin er fram á lögreglustöðvum um land allt, jafnvel oft á dag, og á svarinu veltur hvaða lögmaður kemur til með að gæta réttinda einstaklings sem sviptur hefur verið frelsinu með handtöku. Ef viðkomandi þekkir ekki til lögmanns, eins og til dæmis flestir erlendir ríkisborgarar, þá útvegar lögreglan þeim lögmann af lista sínum, svonefndan „jámann“. Þetta er afar fámennur hópur lögmanna sem fær langstærstan hluta málanna.
Eins og gefur að skilja er Afstaða, félag fanga, í nánum tengslum við skjólstæðinga lögmanna sem sérhæfa sig í verjendastörfum og lögmenn sjálfa. Afstaða fær margar kvartanir vegna þessa fyrirkomulags hjá lögreglu og má sannarlega tala um viðvarandi óánægju. Sökum þessa setti Afstaða upp lista yfir þá lögmenn sem félagið þekkir og getur með hreinni samvisku gefið meðmæli þegar kemur að sakamálum. Listann má finna á vefsvæðinu domareiknir.is. Lögmannafélag Íslands hefur gert athugasemdir við listann og þá lögmenn sem á honum eru auk þess sem „jámenn“ lögreglunnar hafa borið út gróusögur um þá góðu lögmenn sem á lista Afstöðu eru. Markmið Afstöðu og lögmannafélagsins hlýtur að vera það sama, þ.e. að sakaðir menn geti valið sér verjendur. Með því að koma upp vottuðum, gagnvirkum og gagnsæjum lista yfir lögmenn sem reiðubúnir eru til að taka að sér verjendastörfum á hverjum tíma og gefa handteknum einstaklingum kost á að velja af listanum er hægt að auka traust milli allra þeirra sem að málum koma. Vottunin gæti stafað frá Lögmannafélagi Íslands, Afstöðu, Ríkislögreglustjóra og Ríkissaksóknara. Lögmenn skrái sig á listann og geti sjálfir skráð í gegnum netið hvenær þeir eru til taks. Lögregla hafi því alltaf nýjustu upplýsingar um tiltæka lögmenn og geti prentað út eintak fyrir þann handtekna til að fara yfir. Á listanum komi fram upplýsingar um menntun og sérgreinar lögmanna. Afar mikilvægt er að allar leikreglur séu skýrar og opinberar og að öllum mögulegum vafaatriðum um skipun verjenda á fyrstu stigum málsmeðferðar sé eytt. Það verður til þess að auka traust á milli sakborninga og lögreglu og ekki síður innan lögmannastéttarinnar. Á meðan núverandi fyrirkomulag er við lýði mun Afstaða áfram leiðbeina þeim sem til félagsins leita, enda getur val á lögmanni skipt gríðarlegu miklu máli. Öllu máli skiptir fyrir handtekinn einstakling að hafa við hlið sér lögmann sem hann treystir og er tilbúinn að setja sig inn í mál og berjast fyrir réttlæti, sama hvort það er sýkna eða vægasta refsing. Afstaða hvetur dómsmálaráðherra til þess að kynna sér þessi mál og vinna að lausn með öllum hlutaðeigandi. formadur@afstada.is |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
January 2024
|