Við lítum á þetta sem mikilvægan þátt í innanríkisstefnu okkar. Það er sér kafli um þessi mál. Við lítum svo á að fjölga þurfi úrræðum fyrir fanga. Bæði innan fangelsis og svo við refsingu. Það er til dæmis óásættanlegt að ungt fólk sem hefur misstigið sig og hefur tekið lífið föstum tökum þurfi að fara aftur á byrjunarreit í lífinu vegna þess að þau eiga eftir að afplána dóm sem þau fengu í neyslu. Hér á að vera hægt að skilorðsbinda þegar fólk stendur sig vel. Það er einnig óásættanlegt að ungt fólk sem tekið er með fíkniefni á sér þarf að lenda á sakaskrá og takmarka verulega framtíðar-starfsmöguleika. Lykilinn að bættu samfélagi er að fangar eins og annað fólk geti fengið tækifæri til að verða virkir þjóðfélagsþegnar frekar en að vera minnihlutahópur í samfélaginu sem enginn veit hvernig á að umgangast. Stefnan eins og hún er sett fram á netinu:
|
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
January 2024
|