AFSTAÐA sendi stjórnmálaflokkum sem bjóða fram til Alþingis fyrirspurn varðandi stefnu þeirra í málefnum í málefnum sem snúa að fangelsiskerfinu. Sérstaklega var kallað eftir sýn stjórnmálaflokka á heildarnálgun í betrun, mennta- og atvinnumál í fangelsum, heilbrigðisþjónustu fanga, þar á meðal geðheilbrigðisþjónustu og úrræði fyrir fanga eftir afplánun. Sjá nánar: Fangar hafa líka kosningarétt! Borist hafa svör frá sex flokkum: Viðreisn, Samfylkingu, Pírötum, Bjartri framtíð, Flokki fólksins og Framsókn. Misjafnt er hversu ítarleg stefnan er, en fram kom í svari Bjartrar framtíðar að ekki væri um eiginlega stefnu að ræða þó þingmenn flokksins hefðu talað fyrir ákveðnum breytingum og bótum á fangelsismálum. Þá sagðist Flokkur fólksins ekki hafa mótað sérstaka stefnu í fangelsismálum, en í öllu sem viðkemur fangelsismálum bæri að hafa í huga að innan veggja fangelsa skyldi virða mannréttindi og reyna að gera dvöl fanga að betrunarvist en ekki frelsissviptingu án betrunar. Eins væri vilji fyrir að byggja vistun fyrir unga afbrotamenn. Framsóknarflokkurinn ályktaði á flokksþingi fyrr í mánuðinum að markmið fangelsisvistar væri að þeir sem afplána refsidóma snúi út í samfélagið á ný sem betri þjóðfélagsþegnar. "Í því augnamiði þarf að fjölga úrræðum fyrir afbrotamenn enda geta önnur úrræði en fangelsisvist borið meiri árangur, sérstaklega við fyrsta brot. Mikilvægt er að afplánun refsidóma geti hafist sem fyrst að uppkveðnum dómi. Miða skal við að erlendir ríkisborgarar afpláni íslenska refsidóma í heimalandi sínu, þegar við á. Gera skal framsalssamninga við sem flest ríki", segir í ályktuninni. Svör Viðreisnar, Samfylkingar og Pírata reyndust nokkuð ítarlegri, og hefur Afstaða gert stefnu þeirra góð skil með sérstökum hætti: Í svari Viðreisnar kom fram að flokkurinn fjallaði sérstaklega um málaflokkinn í kafla um stefnu í innanríkismálum, enda liti flokkurinn svo á að fjölga þyrfti úrræðum innan sem utan fangelsa. Sjá nánar um stefnu Viðreisnar. Svar Pírata var ítarlegt, enda hafa þeir ályktað sérstaklega um málefni fanga sem aðgengilegt er á heimasíðu flokksins. Fylgir ályktuninni ítarleg og góð greinargerð í 12 liðum. Sjá nánar um stefnu Pírata. Samfylkingin hefur einnig sett fram stefnu í fangelsismálum sem samþykkt var á landsfundi flokksins þar sem sérstaklega er lögð áhersla á betrunarvist, geðheilbrigði fanga og afglæpavæðingu fíkniefna. Sjá nánar um stefnu Samfylkingarinnar. Ekki hafa borist svör frá öðrum flokkum. Uppfært 23. október 2016: Afstöðu hefur borist svar Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, en þar kemur fram að erindinu hafi ekki verið svarað fyrr fyrir mistök. Vinstri græn vilja nálgast fangelsismál út frá hinum mannlega vinkli og hugmyndum um að hjálpa þeim sem hlotið hafa dóm til farsældar í lífinu. Burtséð frá þeirri staðreynd að slík nálgun skilar sér peningalega er aðalmálið að viðkomandi einstaklingar og þar með allt umhverfi þeirra batnar fyrir bragðið. Sjá nánar: stefna VG í velferðarmálum. Tryggja þarf réttindi og góðan aðbúnað fanga sem og að bjóða þeim aðgang að menntun og viðunandi meðferðar- og heilbrigðisþjónustu. Leggja ber áherslu á betrunarvist í stað refsivistar í fangelsum landsins, þar sem efla þarf geðheilbrigðisþjónustu til muna. Efla þarf samfélagsþjónustu í stað fangelsisrefsingar. Stórefla þarf möguleika fanga til að viðhalda tengslum við fjölskyldur sínar á meðan á afplánun stendur, ekki síst í þágu barna þeirra. Uppfært 23. október 2016: Afstöðu hefur borist svar Sjálfstæðisflokksins um málefni fanga: Á síðasta landsfundi ályktaði landsfundur Sjálfstæðisflokksins eftirfarandi: "Mikilvægt er að fangar fái notið réttinda sinna. Leggja skal áherslu á menntun og annan stuðning við þá. Efla þarf úrræði fyrir andlega vanheila afbrotamenn. Fangelsisstofnanir verða að vera í stakk búnar til að sinna hlutverki sínu þannig að föngum sé veittur stuðningur til sjálfseflingar. Mikilvægt er að styðja við þá sem nýlega hafa lokið afplánun. Brýnt er að stytta biðtíma dómþola eftir að geta hafið afplánun. Möguleikum á fullnustu utan fangelsa þarf að nýta betur og fjölga, t.d. með samfélagsþjónustu og rafrænu eftirliti.” Þá segir í svarinu að áherslur Sjálfstæðisflokksins komi fram í nýlegum lögum um fullnustu refsinga. ritstjorn@afstada.is |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
January 2024
|