SJÁ EINNIG: "Við skiptumst á að elda"
50 gr. þurrger 12 dl. volgt vatn 6 tsk. salt Durum- eða pizzahveiti Hvítt hveiti 6 tsk. ferskt Rósmarín 18–20 hakkaðir sólþurkaðir tómatar 1 lítil krukka af svörtum ólífum og skera þær 6 msk. ólívuolía AÐFERÐ: Leysið þurrgerið upp í volgu vatni og bætið við salti, rósmarín, sólþurkuðum tómötum, ólívum og ólívuolíu. Bætið svo Durum hveitinu út í þangað til degið er orðið frekar slepjulegt, skiptið þá og setjið hvíta hveitið þangað til degið er orðið klárt, fallegt og þykkt. ■ Látið degið hefast í um 3 klukkutíma. ■ Skerið degið og skiptið því í 6 hluta. ■ Hnoðið og formið í Baguette (langt brauð) og setjið á plötur með bökunarpappír undir. ■ Penslið ólívuolíu ofan á brauðið og stráið grófu salti og rósmarín yfir brauðið. ■ Látið brauðin standa í 15 mínútur á bökunarplötunni. ■ Setjið brauðið í ofninn í 18 mínútur á 225°C. ATH: Ef notað er annað hveiti en Durum gæti brauðið þurft að vera lengur í ofninum, eða allt að 30 mínútur. Munið bara að fylgjast vel með því, án þess að opna ofninn. FYLGIR MEÐ GREININNI: "Við skiptumst á að elda" |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
January 2024
|