Ég man vel undirbúninginn að stofnun félagsins. Aðeins nokkrum dögum áður hafði Valtýr Sigurðsson (þá forstjóri fangelsismálastofnunar) haft samband á Litla-Hraun og beðið um að stofnað yrði félag sem hann gæti átt formlegt samstarf við, til að vinna að og bættum aðstæðum fanga á Íslandi. Valtýr gékk vaskur til verks og það stóð ekki á honum að gera breytingar. Hann hlustaði og breytti oft úreldum reglum.
Samvinnan smitaði út frá sér og kveikti neista í föngum. Andrúmsloftið varð betra en áður hafði verið. Breytingar urðu á lagaumhverfi og hlustað á sjónarmið fanga og aðstandenda okkar, enda starfrækt sérstakt félag aðstandenda. Það hafði ekki verið mikið hlustað á sjónarmið fanga og aðstandenda fyrir þennan tíma. Er mér minnisstætt prófkjör Sjálfstæðisflokksins, en Sólveig Pétursdóttir hafði verið dómsmálaráðherra, og vorum við allt annað en sáttir við áhugaleysi ráðherra á málaflokknum. Send var út hvatning um skráningu í flokkinn, mætingu í prófkjör og útstrikun ráðherrans. Í ljós kom að fjöldinn sem hafði strikað út ráðherrann var svo mikill að hún færðist niður á lista og inn kom Björn Bjarnason. Það má nú svo deila um það hvort hann hafi haft meiri áhuga á málaflokknum , en hann skipaði þó Valtý sem forstjóra fangelsismálastofnunar sem leiddi til mikilla framfara í málaflokknum. Þarna sáum við mikilvægi samstöðunnar. Öðruvísi fáum við ekki hlutum breytt. Undanfarin ár hef ég átt marga uppbyggilega fundi hér á Akureyri. Ber þar að nefna fund minn með umboðsmanni Alþingis, umboðsmanni höfuðborgarbúa og framkvæmdastjóra ADHD samtakanna. Áformaðir eru fundir með innaríkisráðherra, borgarstjóranum í Reykjavík og Rauða Krossi Íslands. Eftir mikla umfjöllun á þingi og í fjölmiðlum var loks tryggð að nýju 100% stöðugildi námsráðgjafa í fangelsunum. Einnig er nú greitt að nýju fyrir skólabækur allra, en ekki bara sumra. Þá fékk ég nýverið mjög jákvæð viðbrögð frá skólasamfélaginu varðandi fyrirspurn um möguleika fanga til samningsbundins iðnnáms og náms á grunndeildarstigi verknámsskóla. Eins og oft áður stendur einungis upp á fangelsismálastofnun að efna til samstarfsins. Gífurleg vinna hefur verið lögð í að gera athugasemdir við hin ýmsu lagafrumvörp, lagðar hafa verið fram ítarlegar tillögur um framgang og betrun í fangelsiskerfinu, auk þess sem við höfum unnið að tillögum um nám og störf í fangelsunum um land allt. Draumurinn er að upp verði tekin stefna í fangelsismálum sem byggir á betrun, í stað þeirrar úreldu refsistefnu sem verið hefur við lýði á Íslandi. Það framvarp sem á að leggja fram á Alþingi á næstunni er engin breyting á hinu úrelda kerfi og stendur von mín enn til þess að það verði lagt til hliðar – og unnið verði lagafrumvarp sem byggir á þeirri betrunarhugmynd sem löndin sem við berum okkur saman við hafa tekið upp, með ótvíræðum árangri. Í dag og á morgun einbeitum við okkur að hátíðarhöldum vegna afmælisins, en horfum jafnframt til baka og þökkum fyrir það sem vel hefur verið gert. Það er enda með miklu þakklæti sem Afstaða veitir í dag fjórum einstaklinum viðurkenningu fyrir störf sín að málefnum fanga. Þeir eru: GUNNAR SVAVARSSON, verkfræðingur fyrir störf að íþróttamálum fanga. HREINN S. HÁKONARSON, fangaprestur fyrir stuðning við aðstandendur fanga. INGIS INGASON, fv. kennslustjóri fyrir störf að menntamálum fanga. ÞÓRIR HÁKONARSON, framkvæmdastjóri KSÍ fyrir störf að íþróttamálum fanga. Til hamingju með afmælið! Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður |
höfundarGuðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu bloggar, ásamt öðrum talsmönnum fanga, um málefni fanga og betrun. formadur@afstada.is pistlasafn
January 2024
|